Andvari - 01.01.2002, Page 193
ANDVARI
ANDANS KONA OG ORÐABÓKARPÚL
191
til áframhaldandi orðabókaranna, ef hugur hefði ekki fylgt máli. Orðabókar-
vinnan kom vissulega í veg fyrir að hún gæti sinnt hugðarefnum sínum sem
sjálfsagt hafa þrýst æ meira á eftir því sem árin liðu. Flestir, sem hafa verið
niðursokknir í sama vérkefnið um langa hríð en eygja í fjarska nýtt og spenn-
andi svið, finna fyrir sams konar létti og Björg. Farginu, sem á þeim hvíldi,
hefur verið létt, fjötrarnir leystir og andinn er reiðubúinn til nýrra átaka.
✓
A banabeði
Þegar Björg féll frá 1934 var langt því frá að hún væri sátt við orðabókarmál-
ið. Hún var greinilaga sár og leið. Arin, sem liðu milli þess að hún samþykkti
eignaskiptasamninginn, gaf út bæklinginn handa þingmönnum (1928) og
skrifaði Sigfúsi frá París (1929), þegja að mestu um hvað það var sem olli
þessum sárindum. Skýringar geta aðeins verið getgátur byggðar á litlum
heimildum. Of einfalt er að ætla að Björgu hafi einungis mislíkað hversu
hlutur hennar varð lítill í því lofi sem orðabókin, og einkum þó Sigfús fékk,
þegar menn höfðu kynnst verkinu, þótt eitthvað kunni henni að hafa sárnað
það. Frændi hennar, Jón Dúason, tók að minnsta kosti upp þykkjuna fyrir
Björgu. Hann skrifaði Guðmundi Finnbogasyni þáverandi landsbókaverði og
forseta Hins íslenska bókmenntafélags bréf 11. febrúar 1934" en þá hafði
Sigfús þegar verið kjörinn heiðurdoktor frá Háskóla íslands og heiðursfélagi
Bókmenntafélagsins fyrir orðabókina. Björg hefur líklega séð bréfið því upp-
kast þess lá meðal gagna sem hún lét eftir sig. Þar segir m. a.:
En hvers vegna gleymduð þið Björgu? Var hún síður verðug fyrir orðabókarstarfið? Eða
var hún síður verðug fyrir þá sök, að verðleikar hennar voru enn meiri á öðrum sviðum
en þessu eina, orðabókarstarfinu?
Síðan lagði Jón til við Guðmund að Björg yrði kjörin heiðursfélagi í Bók-
menntafélaginu og prófessor við Háskóla Islands í virðingarskyni fyrir störf
hennar.
Nokkrum dögum síðar, 21. febrúar, skrifaði Jón Dúason bréf fyrir Björgu
þar sem hún lá á St. Elísabetar spítala. Bréfið er stutt og snertir orðabókina:
Heilbrigð sál og með fulla skynsemi og skynjun lýsi jeg, Björg C. Thorlaksson, því yf-
ir samkvæmt yfirlýsingu Jóns Ófeigssonar, að þeir orðabókarseðlar sem jeg hafði orð-
tekið í orðabókarhandritið, voru afskrifaðir af Önnu Bjarnadóttur af prívatástæðum, sem
ekki er vert að nefna.
Jeg tek það fram, til þess að girða fyrir sjerhvern misskilning, að jeg hef talið Sigfús
sem aðalverkamann og mig sem samverkamann hans við orðabókina, og mjer hefur ver-
ið ánægja að því að starfa með honum.