Andvari - 01.01.1923, Page 117
Andvari.
ísland og fullveldi þess.
i.
Alþingi var sett á Þingvöllum 930 árum ettir Krists
burð. Var það gert að ráði Úlíljóts og allra lands-
manna. Þá hófst allsherjar ríki á íslandi. Hefir land-
ið jafnan síðan verið eitt og óskift ríki. Raunar telja
sumir, að goðorðin hafi verið ríki, en það verður þó
eigi með sanni sagt, þar sem þau ríki hefði þá ekk-
ert land haft. Hinar fyrstu aldir var hér lýðveldi
með höfðingjastjórn, en 1262 varð landið konungs-
riki. Svo hefir jafnan verið síðan.
En konungar íslands hafa jafnframt verið konung-
ar i öðrum stærri löndum, einu eða fleiri. Peim varð
því að gleyma gamla sáttmála, er ákvað konungs-
samband milli íslands og Noregs, og telja ísland
skattland, er lægi undir höfuðríkið. Urðu því skjótt
vanefndir á og sáttmálsrof. Og hefði hérlandsmenn
haft hug og vit til, þá hefði þeir getað neytt niður-
lags sáttmálans: »Halda skulum vér ok vorir arfar
allan trúnað við yðr meðan þér ok yðrir arfar halda
við oss þessa sættargerð, en lausir, ef rofin verðr af
yðvarri hálfu at beztra manna yfirsýn«. En þeir
neyttu aldrei þessa ákvæðis, þótt þeir hefði ástæðu
til þess á hverju ári. Konungar gengu á lagið og
færðu sig upp á skaftið, en landsmenn linuðust
smámsaman í vörn réttinda sinna, svo að þau gleymd-