Andvari - 01.01.1923, Síða 140
136
ísland og fullvcldi þess.
lAndvari.
kljá þrætu, en hann er engin stoínun og því síður
sameiginleg stofnun fyrir ísland og Danmörku, því
að í sljórnarfarsstofnun, er væri sameiginleg sam-
bandsstofnun, gæti þó eigi verið menn valdir af
stjórnum annara ríkja. Seytjánda grein sambandslag-
anna sýnir einmitt að ísland og Danmörk eru full-
komlega aðskilin fullvöld ríki, sem verða að láta
miðla málum sin á milli á nákvæmlega sama hátt
sem Japan og Frakkland til dæmis að taka inundu
gera, ef jafna skildi deilu þeirra á milli með gerðardómi.
18. gr. »Eftir árslok 1940 getur Ríkisþing og Alþingi
hvort fyrir sig, hvenær sem er, krafist að byrjað verði
á samningum um endurskoðun laga þessara.
Nú er nýr samningur ekki gerður innan þriggja
ára frá því að krafan kom fram, og getur þá Ríkis-
þingið eða Alþingi hvort fyrir sig samþykt að samn-
ingur sá, sem felst i þessum lögum, sé úr gildi feld-
ur. Til þess að ályktun þessi sé gild verða að minsta
kosti 2/s þingmanna annaðhvort i livorri deild Ríkis-
þingsins eða í sameinuðu Alþingi að hafa greitt at-
kvæði með henni og hún síðan samþykt við at-
kvæðagreiðslu kjósenda þeirra sem atkvæðisrétt hala
við almennar kosningar til löggjafarþings landsins.
Ef það kemur í ljós við slíka atkvæðagreiðslu að a/4
atkvæðisbærra kjósenda að ininsta kosti hafa tekið
þátt í atkvæðagreiðslunni og að minsta kosti aU
greiddra atkvæða hafi verið ineð samningsslitum, þá
er samningurinn fallinn úr gildi«.
Ressi grein sj'nir, að hér er eigi tjaldað nema til
einnar nætur, að hér er um tímabundinn samning
að ræða milli tveggja fullvalda ríkja, samning þjóða-
rétlar eðlis. Hún sýnir og að bæði ríkin eru að öllu
leyti jafnt sett. Greinin setur og fyrirmæli um það,