Vaka - 01.07.1927, Side 63
[vaka]
STJÓRNAKSKRÁRMÁLIÐ.
269
fram. Hei'ði enginn sparnaður verið að þessu, hefði flutn-
ingsmönnunum ekki komið til hugar að gera breytingar
á því. Svo slæðast fáeinar aðrar breytingar með, sem
Ijóst er, að engu máli skifta um fjárhaginn. En þær
fljóta að eins í fari hinna og' er óhætt að fullyrða, að
stjórnarskrármálinu mundi eigi hafa verið hreyft vegna
þeirra einna. Af þessu virðist þá mega marka það, að
helztu stjórnmálamenn vorir, eða a. m. k. foringjar
lieggja aðalliokka þingsins, sjái eigi annað athugavert
við stjórnarskipun vora en helzt það, að hún sé of kostn-
aðarsöm, kosti 50.000 kr. ineira á ári en hún þyrfti að
kosta. Það verður heldur eigi séð, að rit þau um þing-
stjórnina, sem áður voru nel'nd, hafi haft nokkur áhrif
á stjórnmálamennina. Hvergi er einu orði vikið að til-
lögum höfunda þeirra, nema lítilsháttar um eitl atriði
í einni af ræðum Jóns Magnússonar 1924.
Það er ekki að furða þó að þeir menn, sem líta þannig
á núverandi stjórnarskipun, að hún þurfi meginbreyt-
inga við, láti sér l'átt um finnast stjórnarskrárbreytingar
síðasta þings og telji það litlu varða, hvort þær verða
samþykktar eða eigi. Fyrir þá eru þessar breytingar nán-
ast fræðiatriði, sýnishorn af pólitiskri hugsun leiðtoga
þjóðarinnar. En hinir eru enn þá miklu fleiri, sem telja
stjórnarskipun þá, sem nú gildir, fullnægjandi og viðun-
andi í öllum aðalatriðum. Rétt er að athuga málið fvrst
frá sjónarmiði þeirra manna og meta breytingarnar á
grundvelli hins núverandi skipulags.
Fækkun þinga. í stjórnarskránni 1874 var á-
kveðið, að reglulegt Alþingi skyldi koma saman annað-
hvert ár og að fjárhagstímabilið skyldi vera tvö ár. Ivon-
ungur gat þó stefnt Alþingi saman til aukafunda. Stóð
þessi skipun óbreytt til 1920. Framan af voru aukaþing
fátíð. Fram til 1910 voru þau að eins 3, 1880, 1894 og
1902, öll kölluð saman vegna frumvarpa um breytingar
á stjórnarskránni. En á tímabilinu 1911—1920 voru 0
aukaþing háð, og var á því tímabili þing haldið á hverju