Vaka - 01.07.1927, Blaðsíða 86

Vaka - 01.07.1927, Blaðsíða 86
292 HAUGABROT. [vaka] og þakkargjörð er hann hugleiddi hina innilegu gleði, sem hver hans hreyfing og líkamsstelling þá hefði vak- ið múgnum. Sama regla á við um hverja aðra algenga heimilis- mæðu. Sá, sem er að reyna að veiða flugu upp úr mjólkinni sinni eða korkörðu úr vínglasinu sinu, i- myndar sér oft, að hann sé gramur. Hann ætti að hugsa ögn um þolinmæði þeirra, er dorga í dimmum hyljum, og láta geisla unaðar og hvíldar streyma við- stöðulaust um sál sína. Ég hefi líka þekkt menn með ný- tizku lífsskoðun, er í öngum sínum gripu til guðfræði- orða, sem þeir lögðu engan trúnað á, fyrir það eitt, að skúffa sat fösl í falsi sínu og þeir gátu ekki dregið hana lit; þetta amaði sérstaklega að einum vini mínum. Dag hvern sat skúffan föst í falsinu, og dag hvern varð því að kveða við nýjan tón. En ég henti honum á, að þessi tilfinning, að eitthvað væri að, hún væri í rauninni hug- læg og afstæð; hún væri algjörlega af þeirri skoðun sprottin, að skúffan gæti auðveldlega komið út, ætti að gera það og mundi gera það. „En ef þú“, sagði ég, „hugsar þér, að þú sért að togast á við einhvern vold- ugan og illvígan óvin, þá verður baráttan að eins örf- andi og ekki gremjublandin. Hugsaðu þér, að þú sért að draga bjargbát úr sjó. Huglsaðu þér, að þú sért að toga félaga þinn upp úr gjá í Alpafjöllunum. Hugs- aðu þér aukheldur, að þú sért orðinn drengur aftur og standir í reipdrætti milli Frakka og Englendinga". Skömmu eftir að ég hafði þetta mælt, fór ég frá hon- um, en ég efast ekki lifandi ögn um, að orð mín hafi borið bezta ávöxt. Ég efast ekki uin, að hann til æfi- loka hangi dag hvern í handfanginu á þessari skúffu, kafrjóður í framan, augun ljóma af vígahug, hann trutt- ar á sjáifan sig og virðist heyra aðdáunarópin hljóma allt umhverfis. Ég held þá ekki, að það sé neitt fimbulfamb eða fjar- stæða að hugsa sér að það megi jafnvel fella sig vel við ílóðin í Lundúnum og hafa skáldlega nautn af þeim. Þau virðast í rauninni ekki hafa valdið neinu öðru en óþæg- indum; og óþægindin eru, eins og ég sagði, að eins eitt sjónarmiðið og það hugsunarsnauðasta og rakalaus- asta sjónarmiðið á atvikum, sem í raun og veru eru skáldleg. Æfintýr er ekki annað en óþægindi rétt á lil- ið. Óþægindi eru ekki annað en æfintýr, sem rangt er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Vaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.