Menntamál - 01.12.1939, Síða 15

Menntamál - 01.12.1939, Síða 15
MENNTAMÁL 141 fyrir, en hin fást við eitthvað, sem þeim er nauðsynlegra á meðan. Ég læt hér staðar numið um móðurmálskennsluna, þótt fátt eitt sé fram tekið af því, sem vert væri að minnast á. Að lokum ætla ég að minnast á atriði, sem lítið hefir verið ritað um opinberlega hér á landi, en kennarar hafa rætt í sinn hóp, það er sérstaða kynjanna í barnaskólun- um. Hygg ég að því máli verði miklu meiri gaumur gefinn næstu áratugi en hingað til. Alkunnugt er það, að drengir og telpur hafa mjög ólik sjónarmið og mismunandi áhugaefni þegar á ungum aldri, en einkum skerpist þessi munur um 10—11 ára aldurinn. Til dæmis er það mjög áberandi í barnaskólunum, hversu áhugasamar telpur á aldrinum 11—14 ára eru um allt, sem lýtur að kvenlegum störfum, svo sem hannyrðum og mat- reiðslu. Er ekki ofmælt, að flestar telpurnar gangi að þessu námi með fögnuði og hlakki til hverrar kennslustundar. Þennan mikla áhuga, sem sýnilega er sprottinn af innri þörf, ber að nota til hins ítrasta, ekki einungis til þess að kenna þessar greinir, heldur ætti vafalaust að koma sem mestum hluta námsins í tengsl við þessi rótgrónu hugðar- efni. Af þessu leiðir meðal annars, að þar sem því verður við komið, er rétt að skipta börnunum frá 10—11 ára aldri í bekki eftir kynferði. Ég hefi ekki rúm til að rökstyðja þessa skoðun að sinni, en ég vil aðeins benda á það, að ég þykist viss um, að eigi líði mjög langt þangað til, að í stærri skólum þyki sjálfsagt að hafa sérstakar kennslu- stofur fyrir kennslu eldri telpna og aðrar fyrir drengi. í kennslustofu stúlknanna mundi verða eldavél í einu horni og saumavélar í öðru, uppþvottavaskur yrði þar einnig og annað, sem nauðsynlegt væri til starfa í eldhúsi og dagstofu. Þó færi því fjarri, að stúlkurnar ættu mestan hluta skólatímans að starfa við uppþvotta, eldhússtörf og saumaskap. Þær yrðu látnar reikna, skrifa, lesa og teikna mikið á hverjum degi. En allt yrði þetta sett í samband

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.