Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 44
170
MENNTAMÁL
ingarstarfsemi þeirra er fyrir löngu orðin heimskunn, svo
að okkur Evrópumönnum þykir jafnvel nóg um á stundum.
Og nú voru öll hugsanleg ráð notuð til að skipuleggja
æskulýð Bandaríkjanna undir merki R. kr., því að þegar
svo stóð á sem hér, að þjóðin átti í ófriði, réttlættist allt
í skjóli þess, að tilgangurinn helgaði meðalið. Fljótt fáum
vér séð, að árangurinn af þessu starfi var mikill þegar vér
hugsum um höfðatölu þeirra, er skipulagðir voru innan
þessarar starfsemi er var í lok ófriðarins 11 miljónir ung-
liða í Bandaríkjunum.
Það var ekki einungis að börnin inntu þarna starf af
höndum til blessunar og í þágu annarra, heldur urðu upp-
eldisfræðingar, kennarar, og aðrir þeir, er með starfi barn-
anna fylgdust þess áskynja, að félagsskapur þessi og starf
hafði hin heillavænlegustu áhrif á hugarfar og skapdeild-
ir barnanna. Bæði þetta, svo og áhugi unglinganna sjálfra
varð til þess að nú var félagsskapnum haldið áfram.
Sumum kynni nú ef til vill að finnast, að við lok ófriðar-
ins hefði starf þetta af sjálfu sér fallið niður. En hér varð
önnur reyndin á. Það þurfti ekki lengi að skyggnast eftir
viðfangsefnunum. Þau voru mörg og auðfundin. Eins og
kunnugt er var fjármagn mikið í Bandaríkjunum að af-
lokinni heimsstyrjöldinni, meðan Evrópuþjóðirnar voru
sundurtættar í sárum og fátækt.
Ungliðarnir vestan við hafið einbeittu kröftum sínum
til hjálpar jafnöldrunum í Evrópu, sem tilveran hafði leikið
svo grátt og hlífðarlaust og sultur og neyð svarf að þúsund-
um barna. Þessi sístarfandi æskulýður í fjarlægri heims-
álfu sendi í hundraðþúsundatali matarböggla til Evrópu
eða klæði, en þessu var svo útbítt frá stöðvum þeim, sem
deildirnar vestan hafs settu upp á meginlandi Evrópu.
í Póllandi var fyrirkomulagi þessara mála háttað nökkuð
á annan veg en tíðkaðist í öðrum löndum, því að um leið
og börnunum voru fengnir fæðis- og klæðisbögglarnir var
þeim í skólunum úthlutað garöyrkjutækjum og fræjum