Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 19
menntamál
145
hverskonar félagslegan þroska og vakið áhuga á mörgum
sviðum.
íslenzkt náttúrufræðifélag var stofnað 16. júlí það ár
fyrir forgöngu Stefáns kennara Stefánssonar. Átti það að
taka við af samskonar félagi, er stofnað var af honum og
Birni cand. jur. Bjarnarsyni í Kaupmannahöfn 1887. Til-
gangur þess var að safna íslenzkum og útlendum náttúru-
gripum, dýrum, jurtum og steinum, og átti þetta að vera
vísir að náttúrugripasafni hér á landi.
Og enn má geta þess, að Gestur Pálsson flutti þá hinn
kunna fyrirlestur um „Menntunarástandið á íslandi“. Fyr-
irlesturinn vakti þann storm í Reykjavík, að borgarafund-
ur var kallaður saman til þess að ræða hina alvarlegu
ádeilu Gests. Sóttu fundinn um 300 manns.
Af framanskráðu og ýmsu öðru ónefndu er hægt að sjá,
að þetta ár er farsældar- og merkisár fyrir þjóðina í heild.
14. nóv. 1939.
G. M. M.
Kostakjör fjrir kennara.
Elzta tímarit um upeldismál, sem gefið hefir verið út hér á landi
er Tímarit um uppeldi og menntamál, sem þeir gáfu út, Jóhannes Sig-
fússon, Jón Þórarinsson og Ögmundur Sigurðsson. Rit þetta kom út
í 5 ár, 1888—1892. Útgefendurnir, sem rituðu flestar greinarnar sjálfir,
voru áhugasamir og menntaðir skólamenn og langt á undan samtíð
sinni í þeim efnum, enda er margt góðra greina í ritinu.
Svo heppilega vill nú til, að ekkja Jóhannesar Sigfússonar, frú
Cathinca Sigfússon, á dálítið upplag af öllum árgöngum Tímaritsins.
Kosta allir fimm árgangarnir aðeins 3 krónur, og má panta þá gegn
Póstkröfu eða fyrirframgreiðslu hjá frú Cathincu Sigfússon, Ásvalla-
götu 27, Reykjavík, eða lijá ritstjóra Menntamála.
10