Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 32
158
6 : 2=
6 : 1=
MENNTAMÁL
%=
°/o=
6X 0
OX 6
0 : 6
3., 4., 5. og 6. æfingin eru undirbúningur undir frádrátt-
inn. Bezt er aö reikna frádráttinn sem samlagningu, þar
sem summan er þekkt og annar (eða allir nema einn) lið-
urinn, en hins (eða eins) liðarins er leitað. (Liður — sam-
íeggjandi.)
Pétur og Páll reru á sjó og drógu 6 ýsur. Pétur dró 4 þeirra,
hve margar dró Páll? Hér er frádráttardæmi, því að Páll
hefir dregið það, sem eftir er af 6 ýsum, þegar Péturs 4 eru
frátaldar. Við skrifum því 6—4=2.
En þetta má reikna á tvo vegu:
1. Af 6 ýsum hefir Pétur dregið 4 (þá 1., 2., 3. og 4.). Þá
eru sú 5. og 6. eftir, það eru 2 ýsur). Afganginn hefir Páll
dregið. Þetta er orðað: 4 frá 6 eru 2 eftir.
2. Pétur dró 4 ýsur. Páll hefir dregið 2, því að báðir drógu
þeim 6 ýsur. Það er orðað: 4 og 2 eru 6.
Síðari aðferðin er í allan máta hentugri, og því rétt að
nota hana frá upphafi, þótt munur þeirra komi ekki glögg-
lega fram fyrr en tugir og hærri tölur eru tekin til með-
ferðar.
Æfingarnar 10, 11 og 12 eru undirbúningur undir deil-
ingu. Að deila þýðir: ad skipta, og er í stærðfræðinni tíðast
notað um að skipta i jafna hluti. Það verða börnin að skilja
vel, eins og önnur orð, sem notuð eru.
Deilingarmerkin eru tvö*) og notuð jöfnum höndum,
eftir því hvort betur fer í hvert sinn. Við skrifum 1 y5 en
ekki l-)-l : 5 aðeins vegna þess að hið fyrra er styttra og
einfaldara. Hinsvegar skrifum við 6 : 2 fremur en °/2, vegna
þess að hið síðara fer verr í línu, nema það sé óþægilega
smátt skrifað. Það er því alveg sjálfsagt að kenna börnun-
*) Ég tel ekki hin algerlega óþörfu merki: 2) 6 (3; 2) 6 og 2) 6 = 3,