Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 46
172
MENNTAMÁL
grundvallar stofnunar þeirra, en þeim hugsjónum var
vissulega tekið tveim höndum í álfu vorri.
Fyrstu ungliðadeildirnar, sem stofnaðar voru í Evrópu
voru í Póllandi, og síðan urðu þær stofnaðar í hverju land-
inu af öðru. Hér að framan hefi ég í stórum dráttum skýrt
frá tildrögum og hugsjónum þeim, er lágu til grundvallar
við stofnun fyrstu ungliðadeilda Rauða krossins, en vitan-
lega farið fram hjá mörgu, sem nefna mætti, en ekki verð-
ur talið til aðalstarfs þeirra. Það hefir svo orðið hlutverk
áhugasamra kennara, sem hafa beinan aðgang að börn-
unum að skipuleggja starf deildanna, og aðalheimkynni
þeirra hafa því orðið barnaskólarnir og starfsvöllurinn
haslaður innan þeirra veggja, og ungliðarnir átt þess kost
þaðan með góðri tilsögn og hjálp, að láta fyrirætlanir
sínar rætast.
Stefnuskrá og starf ungliðadeildanna hefir verið ákveðið
og mótað í þrem liðum aðallega, og er það nú ætlun vor, að
leggja það fyrir kennara og uppeldisfræðara vora þegar
Rauði kross íslands hefir í hyggju að safna íslenzkri æsku
inn í raðir sínar og stofna hér ungliðadeildir. Þessi þjú
aðalatriði má orða þannig:
1. Heilsuverná og li/cnarstarfsemi.
2. Hjálparstarfsemi og fórnfýsi við systkini og jafnaldra.
3. Alþjóðavinátta, byggð á kynningarstarfsemi unglið-
anna,
og viljum vér nú nánar athuga og ræða hvern lið um sig.
Þá er að athuga fyrsta liðinn, en það er um heilsuverndar-
og liknarstarfsemi.
Það, sem hér er átt við og ætlazt er til í starfsemi ung-
liðadeildanna er, að ungliðum sé kennt, annaðhvort í
heilsufræðitímum skólans eða þá á fundum þeirra sjálfra
utan skólans, utan kennslustunda, hvernig þeim beri að
gæta heilsu sinnar, um hjálp í viðlögum, hjúkrun í heima-
húsum, og svo sérstaklega hvað snertir telpurnar, meðferð
ungbarna. Þeirri venju hefir verið fylgt í R. kr. félögunum,