Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 43
MENNTAM'ÁL
169
ingur þjóðanna fer sívaxandi á störfum þessara félaga og
afrekum þeirra, og virðingin fyrir hlutverki þeirra og köllun
er ótvíræð og mikil.
Ég hefi hér að framan aðeins stiklað á stórum steinum
úr 80 ára æfisögu merkilegs félagsskapar, sem nú lætur
áhrifa sinna gæta um gervallan heim og nær heimsálfa
á milli. Saga þessara félaga er svo viðburðarrík að nægja
myndi í stóra bók. Hér mun nú staðar numið að þessu
sinni og athugað nánar sú starfsemi Rauða kross félaganna,
sem að yngri kynslóðunum veit, en það er:
Ungliðadeildir Rauða kross félaganna.
Rauði kross íslands hefir nú í hyggju að sveigja starf-
semi sína inn á þá braut, sem gert hefir verið i flestum
löndum, þar sem R. kr. hefir starfað, eftir að starfsskrá
hans var endurskoðuð og skipulögð að loknum ófriðnum
mikla, en það er að vekja áhuga æskunnar fyrir hugsjónum
og starfi R. kr. félaganna og framkvæmdum þeirra.
Það er líkt um stofnun fyrstu ungliðadeildanna, að þær
urðu til á þeim árum, eins og R. kr. félögin sjálf, þó það
væri 60 árum seinna er ófriður geisaði í Norðurálfu og
menn bárust á banaspjótum. Þessar fyrstu ungliðadeildir
sköpuðust á ófriðarárunum frá 1914 til 1918. Það var í
byrjun heimsstyrjaldarinnar 1914, þegar hver, sem vetlingi
gat valdið var tekinn í þjónustu þjóðanna, að skólabörn i
Kanada voru bundin í félagsheiidir undir merki R. kr. og
látin búa til margskonar sáraumbúðir og senda þær á
vígstöðvarnar til hinna særðu hermanna. Telpurnar sáu
um saumaskapinn en drengirnir bjuggu um sendingarnar
og smíðuðu einnig ýmsa skemmtilega smámuni, sem þeir
sendu hermönnunum í skotgrafirnar. Þegar svo að Banda-
ríki Norður-Ameríku sögðu Þjóðverjum stríð á hendur var
þessari, hugmynd og starfsemi tekið tveim höndum og skipu-
lögð til hins ítrasta, eins og Ameríkumönnum er svo einkar
lagið að gera um flesta hluti. Útbreiðslu- og skipulagn-