Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 35
MENNTAMÁL
161
pess, er menn fýsir aS þekkja. Og þau þurfa að skilja hvert
gildi hraði og öryggi í skynjun og ályktun hefir fyrir alla
stærðfrœðilega athugun.
Stæröfræðinámið er þá fyrst komið á góðan rekspöl og
tekiö að bera verulegan árangur, er nemendur hafa tamið
sér að finna og leysa stærðfræðileg viðfangsefni í hverri
grein er þeir fást við, hvaða starf er þeir stunda. En áður
en það megi verða, þarf nemandinn að hafa aflað sér
nægrar leikni og hraða í lausn léttra dæma. Æfingatimar
þeir, sem skólarnir hafa yfir að ráða til reikningsæfinga,
nægja ekki öllum börnum, og þá verður að ætla þeim
heimastarf. Heimastarfið getur verið með tvennu móti:
Lausnir ákveðinna viðfangsefna, eða frjálsir leikar. Hið
síðarnefnda hentar yngstu börnunum betur, og ber því
meiri árangur. Ekki má þó fordæma heimadæmin, en þau
verða að vera létt og skipulega samin, og mörg þurfa þau
að vera, svo að reikningshraðinn hafi raunhæft gildi fyrir
barnið.
Lattó er hentugur leikur til byrjunaræfinga í talnalestri.
Sé talnaröð taflanna höfð hærri eða lægri en talnaröð
borðsins, æfir það samlagningu og frádrátt. (Þá er hentast
að hafa töflurnar fleiri en reiti borðsins, svo að leikendur
geti sem best ráð haft á því hvað æfa skal eða þreyta. Sé
t. d. talnaröð borðsins 1 til 36, mætti talnaröð taflanna
vera 20 til 56). Með tilsvarandi breytingum á borðinu, má
einnig gera margföldunar og deilingar „lattó“. Lattó er
einnig til með flatamyndum í stað talna, og þá ágætt til
fyrstu æfinga í formfræði.
Það er og góður kappleikur, og æfir formskynjun yngstu
nemendanna vel, að raða saman sundurskornum flatar-
myndum. Þátttakendur geta verið 2, 3, 4 eða fleiri, og leik-
urinn léttur eða þungur eftir vild, með mismunandi leik-
reglum.
(Þessi leikföng geta 12—14 ára börn smíðað fyrir yngri
11