Menntamál - 01.12.1939, Page 30

Menntamál - 01.12.1939, Page 30
156 MENNTAMÁL ferninganna í fletinum, en þó hafa þau einingu flatar- málsins á valdi sínu. o o • •• o o • •• j o o • o 7—8 ára börn ,sem lagt hafa þessa fleti úr töflum, eru í engum vafa um stærð þeirra, að þeir eru allir jafnir 4 • 3 eða 3 • 4 = 12 ferningar. Þau skjóta töflunum til á marga vegu og athuga hvernig ummálið breytist, þótt flatarmálið (stærðin) sé hið sama. Úr kubbunum (teningum, strendingum, toppstrending- um) hlaða börnin margvíslega strendinga, kassa, hús, súl- ur, turna o. fl. og afla sér þannig þekkingar á grundvallar- atriðum rúmfræðinnar. Það er alkunna hve miklu gleggri og traustari þekking manna, og þó einkum barna, er á þeim einkennum hluta, sem sýnileg eru og þreifanleg, heldur en hinum, sem aðeins eru hugsuð. Þess vegna keppa kennarar að því, að gera alla kennslu; og hvað helzt byrjunarkennslu, sem allra hlutlæg- asta. Nú er mælingafræðin hlutlægust allra greina stærð- fræðinnar, og því einna bezt við barna hæfi. Hún er líka skemmtileg og aðlaðandi fyrir flesta, og þess vegna alls, má stærðfræðikennslan ekki við því að kasta henni frá sér, eða skjóta henni á frest fram á síðustu skólaár. Jafnframt og börnin raða hlutum sínum, hvort sem þau hlaða rúmmyndir, leggja flatarmyndir eða talnakerfi, þarf að æfa frumatriði skriflega reikningsins, og það þarf að gera skipulega, því að öll grautargerð er stærðfræðinni andstæð. Fyrsta kennslan í meðferð tölustafa, skriflegum reikn- ingi, er að æfa greiningu tölugildis þeirra, á svo skipulegan hátt, að börnunum verði sem ljósust öll bygging talnanna. Hér er dæmi (þó ekki tæmandi) um fyrstu athugun tölunnar 6

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.