Menntamál - 01.12.1939, Page 42

Menntamál - 01.12.1939, Page 42
168 MENNTAMÁL drepið á hér að framan, sem Rauða kross félögin starfa, heldur og á ótal mörgum öðrum. Oft sinnis hefir það hent ýmsar þjóðir, eftir að R. kr. tók til starfa, að margvíslegar hörmungar hafa sótt þær heim. Við getum nefnt jarð- skjálftana í Japan árið 1923, hungursneyðina í Rússlandi, þar sem hin glæsilega hetja, Fridtjof Nansen, í broddi R. kr. félaganna vann sitt heimskunna líknarstarf, og síðast jarðskjálftana í Chile. Ætíð þegar slíkar hörmungar hafa að höndum borið hafa R. kr. félögin þegar í stað komið á vettvang og veitt ómetanlegt lið til bjargar, og aðstoðað á margvíslegan hátt, eða oftast veitt slíkri starfsemi forystu. Ég hefi aðeins nefnt þessi dæmi um starfsemi R. kr. almennt og mætti margt fleira finna. Rauði kross íslands er eitt yngsta félagið í alheimssamtökum þessum, eða að- eins 15 ára gamallt. Á undanförnum árum hefir hann reynt að beita sér fyrir ýmsum velferðarmálum við mis- jafnan árangur. Svo nefnt sé tvennt al' því, sem hann enkum hefir beitt sér fyrir, og orðið mikið ágengt í, vil ég hér geta sjúkraflutninganna, sem hann hefir einn annazt nú til margra ára hér í höfuðstaðnum og nágrenni hans, svo og sjúkraskýlisins í Sandgerði, sem R. kr. hefir rekið nú um þriggja ára skeið. Með þessu starfi sínu hefir félagið lagt meira af mörkum en margan grunar, og hlotið mikla viðurkenningu og vinsældir fyrir. Ýmislegt fleira mætti nefna, sem R. kr. í. hefir lagt hönd að, svo sem námskeið um land allt, forskóla hjúkrunarkvenna o. s. frv. En við- fangsefnin eru miklu fleiri og ótalmörg, sem leysa þarf. Enn hefir Rauða krossi íslands ekki vaxið svo fiskur um hrygg, að honum hafi tekizt að koma þeim öllum til fram- kvæmda,* en vonandi á framtíðin eftir að láta þá drauma rætast. Saga Rauða krossins á undanförnum árum er samtengd sögu stórra og merkilegra viðburða. Saga þessara félaga er saga um óteljandi blessunarrík störf, sem mannshöndin hefir unnið í þágu bágstaddra og munaðarlausra. Skiln-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.