Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 55

Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 55
MENNTAMÁL 181 | Árni Friðriksson | Árni hét maður og var Priðriksson. Hann fæddist að Hóli við Stokkseyri 25. ágúst 1878, og dó að Svalbarði á Þórar- insstaðaeyrum í Seyðisfjarðarhreppi í árslok 1938. Snemma í janúar 1939 var hann jarðsettur í kirkjugarði Seyðisfjarð- arkaupstaðar, og fylgdu flestir sveitungar hans til grafar — alllangan veg. En auk þess nokkrir bæjarbúar. Árni kom í Austurland 1907 og gerðist formaður að fiski. Seinna gekk hann á kennaraskólann í Reykjavík og lauk þar prófi vorið 1910. Það haust byrjaði hann barnakennslu á Þórarinsstaðaeyrum og hefir síðan rækt starfið þar í 28 vetur. Jafnframt var hann vélbátsformaður á sumrum og fór að fiski. Sjálfur var hann vélstjóri og notaði sömu vél- ina í báti sínum allt frá 1914. Árið 1910 giftist Árni Vilborgu Jónsdóttur, sem lifir mann sinn, ásamt 3 dætrum og 2 drengjum. Árni var hæglátur maður og hávaðalaus, en athugull, traustur og hreinlátur hið ytra og inna. Hygg ég, að gott hafi verið að hlíta forystu hans og umsjá, hvort sem sótt var á hin hærri miðin eða lægri. Kalla ég til vitnis um það líkfylgdina og vélina í bátnum hans. Auk þess reyndi ég hann nokkuð, bæði sem kennara og samstarfsmann að fé- lagsmálum. Og ber þeirri kynningu saman við hin ofan- nefndu vitni. Árni nefndi býli sitt Svalbarð. Ekki veit ég hvers vegna. En nafnið er táknrænt. Sú kynslóð kennara, sem hann heyrði til hefir búið á Svalbarði og þar er engum vært öðr- um en þeim, sem vinna sér til hita. Nú er rúmið Árna autt og verður þá vel, ef betur skipast eftir en áður. K. F,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.