Menntamál - 01.08.1967, Blaðsíða 50
144
MENNTAMÁL
Sé heyrnardauft barn í almennum skóla, þarf kennarinn
að geta látið það heyra, hvað það segir skakkt, og leiðrétta
sig eftir eyranu, en geti barnið það ekki, þó það noti við-
eigandi heyrnartæki, þarf það á sérkennslu að halda.
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra var stolnað í Reykjavík
síðastliðið haust að loknu foreldranámskeiði í Heyrnleysingjaskóla
íslands.
Félagið er landsfólag með aðsetur í Reykjavík, og eru markmið
þess og leiðir þannig skýrð í félagslögum:
a) Markmið félagsins er að styðja og styrkja heyrnardaufa.
b) Markmiðum sínum liyggst félagið ná m. a. á eftirfarandi liátt:
Með því að halda uppi fræðslustarfsemi meðal foreldra heyrnar-
daufra barna og auka sem mest kynni þeirra á milli og samstarf í
þágu heyrnardaufra.
Með því að styðja og styrkja starfsemi Heyrnleysingjaskólans.
Með því að aðstoða heyrnardaufa við val á lífsstarfi eða til fram-
haldsmenntunar.
Með því að styrkja og greiða fyrir heyrnardaufu fólki á livern
þann hátt annan, sem unnt er.
Eins og sjá má af ofanskráðu eru verkefni félagsins ærin og óhjá-
kvæmilegt, að það afli sér nokkurs fjár. Er því félagsaðild tvenns
konar, annars vegar foreldrar og forráðamenn heyrnardaufra og liins
vegar styrktarmeðlimir.
Félagið hefur þegar byrjað kynningu á vandamálum iieyrnleysingja.
Grein Brands Jónssonar, skólastjóra, í Jtessu hefti Menntamúla er
liður í því starfi. Þá vill félagið benda á grein Sigurjóns Björnssonar
sálfræðings: Sálræn vandamál heyrnardaufra barna, sem birtist í
tímaritinu Heimili og skóli.
Stjórn félagsins skipa: Vilhjálmur Vilhjálmsson símvirki, formaður;
Hallgrímur Sæmundsson kennari, féhirðir og Hákon Tryggvason
kennari, ritari.