Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Page 15

Menntamál - 01.02.1972, Page 15
Hörður Lárusson: Hugleiðingar um stærðfræði og stærðfræði- kennslu Meðal i'oreldra, kennara og fleiri, sem fylgzt liafa með störfum skólanna síðustu árin, hafa farið fram miklar umræður urn nýtt námsefni í stærðfræði, sem fyrst var tekið upp í barnaskól- um Reykjavíkur haustið 1966. Menn hafa haft mjög skiptar skoðanir á þessu nýja námsefni, og er ekki nema gott eitt um það að segja. Náms- eínið í heild hefur ekki verið kynnt almennt, né heldur þau markmið, sem stefnt er að, og má vera, að það valdi nokkru um hluta þeirrar gagn- rýni, sem fram hefur komið. Útbreiðsla þessarar nýjungar varð miklu meiri og örari en ráð var fyrir gert, og nú í vetur, þ. e. skólaárið 1971—72, rnunu næstum öll börn í 1. bekk barnaskólanna í Reykjavík, auk fjöhnargra annarra úti á landi, læra þetta nýja námsefni. Það er hins vegar stutt síðan hafizt var handa um að breyta námsefni gagnfræðaskólanna. Þó er nokkuð síðan nýir þættir voru felldir inn í náms- efni landsprófsdeilda. í þessari grein er ætlunin að gera í stórum dráttum grein fyrir þessum breytingum, orsökum þeirra og inntaki, auk þess sem vikið verður að því, sem framundan er í íslenzkum skólum á þessu sviði. Um miðja þessa öld komu fram í mörgum löndum öflugar hreyfingar, sem miðuðu að því að gera róttækar breytingar á almennri mennt- un í stærðfræði. Stærðfræðingar, sálfræðingar, kennarar og skólamenn mynduðu starfshópa, sem tóku sér fyrir hendur að endurskoða námsefnið, gera tilraunir með kennslu ýmissa þátta þess og rita nýjar kennslubækur. En hverjar voru meginorsakir þessara breyt- inga? Svörin við þessari spurningu eru vafalaust mörg, en ég læt nægja að benda á hinn gífur- lega mismun, sem er á þekkingu nemendanna, þegar þeir ljúka námi, annars vegar og þeim kröfum, sem þjóðfélagið gerir til stærðfræðilegr- ar þekkingar þegnanna hins vegar. Hér fylgir eitt dæmi úr íslenzka skólakerfinu. Fyrir nokkrum árum var stofnaður Tækniskóli íslands. Við gerð námsskrár fyrir þennan skóla var farið eftir danskri fyrirmynd, auk þess sem MENNTAMÁL 9

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.