Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 28
Gurli Doltrup:
„Auðlærð
er
ill
danska”
♦-----------------:---------------♦
MENNTAMÁL
22
Ekki haíði ég lengi átt heima hér á landi er
mér skildist, að ætlaði skólanemandi að telja sig
mann með mönnum meðal jafnaldra sinna,
jmrfti hann að segja: „hað er hundleiðinlegt að
læra dönsku.“ Þetta var fyrirframviðhorf, sem
eldri nemendur sáu um að innræta þeinr yngri,
löngu áður en hinir síðarnefndu byrjuðu að læra
dönsku og fengu tækifæri til að mynda sér sína
eigin skoðun á þessari námsgrein. Hver vill læra
Jsað, sem hinir eldri lítilsvirða? Neikvæð viðhorf
eldri syslkina og foreldra hafa óhugnanlega sterk
áhrif á viðhorf barna til námsgreinar, sem þeim
er ný og ókunn. Þegar ákveðið var, að kenna
ætti dönsku á barnafræðslustiginu, var að mín-
um dómi nauðsynlegt, að bæði námsefni og
kennsluaðferðir breyttist svo rækilega, að börn,
sem byrja að læra dönsku í barnaskóla, gætu
fengið að mynda sér sitt eigið viðhorf við þess-
ari námsgrein. Vonandi mótast viðhorf þeirra
barna, sem nú læra dönsku með breyttri aðferð,
af eigin reynslu þeirra af náminu en ekki af
viðhorfi hinna eldri, senr ekki hafa lært dönsku
á þennan hátt.
í þessari grein ætla ég að fjalla um dönsku-
kennsluna á tilraunastigi, um námsefnið „Jeg
taler dansk“ ásamt viðbótarlesefni, um endur-
menntun dönskukennara og um vandamál, sem
eru framundan.
Þann 3. apríl 1970 sendu skólarannsóknir
Menntamálaráðuneytisins bréf til skólastjóra
barnaskólanna. Þar var sagt frá, hvenær áætlað
væri að færa dönskukennsluna niður á barna-
fræðslustigið, og gerð grein fyrir væntanlegu
námsefni. Þann 18. júní sendi sama stofnun bréf
til skólastjóra barnaskólanna. Þar var sagt frá,
að áðurnefnt námsefni mundi verða gefið út sem
tilraunanámsefni fyrir þá skóla, sem áhuga hefðu,
og að vikunámskeið yrði haldið í ágúst 1970 fyrir
tilraunakennara. Á skólastjóramótinu á Laugum
síðara hluta júnímánaðar 1970 fór fram kynning
á tilraunanámsefninu og umræður um það.
Kennaranámskeiðið í ágúst 1970 var aðeins
fyrir þá kennara, sem höfðu loíorð skólastjóra
sinna íyrir að fá að kenna tilraunaverkefnið vet-
urinn 1970—71. Það var þess vegna eingöngu