Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 40
tjáning þeirra vex á kostnað liins beina I'ram-
lags kennarans.“ I.ögð er áherzla á, að nemendur
tjái reynslu sína og skynjun 1 margvíslegu formi,
m. a. á myndrænan og leikrænan hátt.
Nefndaráhtinu fylgja tillögur um menntun og
þjálfun kennara í samræmi við liið endurskoð-
aða námsefni, svo og framkvæmdaáætlun. Áætl-
unin nær yfir árin 1972—1978, og fylgir fram-
setning hennar fyrirmynd í áliti eðlis- og efna-
fræðinefndarinnar frá 1968. í áætluninni er reynt
að meta í mannmánuðum vinnuþörfina vegna
1) kennaranámskeiða, 2) samningar námsskrár og
námsbóka, 3) námsmats, 4) kynningar hins nýja
námsefnis, leiðbeiningar um forprófun þess,
kennslueftirlits. Niðurstöðutala vinnuþarfarinn-
ar, að lokinni framkvæmd áætlunarinnar árið
1978, er 27 ly2 mannmánuður eða liðlega 22]/2
mannár. Gefur jretta hugmynd um, liversu viða-
mikið það verkefni er, sem skólarannsóknadeild-
in hefur nú lagt drög að.
Aðgerðir þær, sem koma fyrst á dagskrá sam-
kvæmt áætluninni, eru skipun nýrrar nelndar —
til að vinna að skilgreiningu námsmarkmiða og
ákvörðunum um námsefni — og ráðning fram-
kvæmdastjóra 1 14 starfs. Ætlunin er að semja
fyrir mitt næsta sumar tilraunanámsefni og
kennsluleiðbeiningar fyrir 3. bekk (vegna 2 viku-
stunda af 5, sem samfélagsfræði fá í sinn hlut á
því námsári), og verði það forprófað í fáeinum
bekkjum næsta vetur. Þá standa vonir til, að
unnt verði að fá haldið námskeið i Kungalv í
Svíþjóð í júní n.k. á vegum Nordens Folkliga
Akademi fyrir nokkra íslenzka samfélagsfræða-
kennara, sem reiðubúnir væru til liðsinnis við
framkvæmd áætlunarinnar á næstu árum. Á næst-
komandi hausti er svo áformað að hefja samn-
ingu tilraunanámsefnis og kennsluleiðbeininga
fyrir 1., 4. og 7. bekk, en það yrði tekið til for-
prófunarkennslu skólaárið 1973—74.
Stefán Edelstein:
Um
tónmennt
MENNTAMÁL
34