Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 42
Sigríður Valgeirsdóttir:
Hlítarnám
og nýjar
matsaðferðir
MENNTAMÁL
36
Undanfarin ár hefur víða um lönd farið fram
útteki á námsskrám og námsefni skóla. Markmið
eru endurskoðuð í ljósi nútíma þjóðfélagshátta
og skilgreind betur en áður var. Próf eru samin
með skarpari liliðsjón af markmiðum námsins
en fyrr, og mat á námsefni hefur þróazt. Nokkur
áhrif þessarar viðleitni hafa borizt hingað til
lands. Námsskrárnefndir hafa verið skipaðar og
endurskoðun hafin á markmiðum og námsefni.
Nýtt námsefni er jaegar komið á reynslustig í
nokkrum námsgreinum. Einn þátt, sem talinn er
ómissandi hlekkur í námsskrárgerð, hefur þó
vantað, en Jiað er mat á námselni.
Orðið efnismat (curriculum evaluation) nota
eg sem heildarlieiti, er nær til mats á öllu
kennsluefni — námsbókum, myndum hvers konar
og kortum, vinnubókum, kennslutækjum, hancl-
bókum kennara — svo og á Jíví, að hve miklu
leyti kennurum tekst að konta efninu til skila.
Aftur á móti verður orðið námsmat (achieve-
ment evaluation) notað um mat á árangri náms.
Fyllri skýring fæst á þessu orði, ef athugaðar eru
skilgreiningar Cronbachs (1963) og Harris (1963),
sem, Jtótt ólíkar séu, bæta hvor aðra upp. Skil-
greining Husks (1969) skýrir vel orðið mat. Harris
skilgreinir námsmat þannig:
„[Námsmat er] kerfisbundin tilraun til að
afla vitneskju um breytingar á atferli nem-
enda, sem koma í kjölfar skipulagðs náms.“
Cronbach leggur ekki alveg söniu merkingu í
námsmat. Hann segir, að Jjað sé
„öflun og notkun vitneskju til ákvörðunar
um námsleiðir (educational program)“.
T. R. Husk telur mat vera lmglæga ákvörðun,
sem auknar upplýsingar bæti (bls. 8).
í Jæssari grein verður lyrst vikið að námsmati
og Jtróun efnismats. Þá verður kynnt ný kennslu-
aðl'erð, hlítarnám (gjörnám, fullnaðarnám, mast-
ery learning), sem leitt hel'ur til nýrrar aðferðar
við námsmat með einingaprófum (lormative
tests). Að lokum verður rætt um framkvæmd
efnismats og gefið ylirlit yfir Jjær aðferðir, sem
nota má við öflun upplýsinga um árangur nýrra
kennsluhátta og námsefnis með Jtað fyrir augum
að leiðrétta námsskrá, rneðan hún er enn á til-
raunastigi.