Skírnir - 01.08.1917, Blaðsíða 45
Ækirnir] Páll postuli og söfnuöurinn i Korintuborg. 267
ar hann leggur út í þetta verk, og það var ekki að undra
þó að hann legði út i það með ótta og mikilli angist.1)
Hann var nýbúinn að prófa að tala við Grikki í Aþenu,
og hann fann það vel, hve lítið hann hafði til |að bera af
því, sem Grikkir mátu mest. Hann vissi að hann átti
okki til það glæsimennis-yfirbragð, fágaða orðgnótt og
niálskrúð, sem þeir heimtuðu. Og hann gat búist við því,
að kristindómurinn mundi að ýmsu leyti verða eðli þeirra
gagnstæður. Þar við bættist svo það mikla vandamál, á
hvaða strengi hann ætti helzt að slá. Hvaða atriði krist-
indómsins hann ætti að leggja megináherzlu á. Hann
gat ráðist á fjölgyðistrúna og sýnt fram á yfirburði trú-
arinnar á einn sannan guð. Hann gat ráðist á lausungina
og siðleysið og prédikað kristindóminn, sem hina hæstu sið-
ferðisreglu. Og hann gat líka slegið á þann streng, að sýna
fram á það, að kristindómurinn væri sú sanna heimspeki.
Það var alveg eftir Páli að varpa öllum þessum að-
ferðum frá sér. Hann vildi ekki neitt umbótakák þó að
-hann hefði getað komið því á, með því að velja einhverja
þessa stefnu. Það var hans einkenni að stælast við
hvern örðugleika. Einmitt hér, frammi fyrir allra mesta
örðugleikanum velur hann allra örðugustu leiðina.
Einmitt hér, frammi fyrir þessum mönnum, sem hann
gat búist við að mundu telja kristindóminn heimsku,
velur hann þá aðferðina að prédika það, sem þeim
hlaut að vera allra óskiljanlegast og heimskulegast:
Jesúm Krist og hann krossfestan. Maðurinn verður að
de.Vja með Kristi að holdinu til, til þess að hann geti lifað
ny.iu andlegu lífi með honum2). Þetta var að vísu það,
8ein hann prédikaði alstaðar en þó mun hann óvíða hafa
lagt aðra eins áherzlu á það eins og í Korintu. T. d.
mætti nefna prédikun hans í Þessaloniku, þar sem hann
sýnist hafa lagt mesta áherzlu á hinn eina sanna guð, og
endurkomu Jesú Krists8).
Pæði bréf Páls til Korintumanna sýna átakanlega
1 Kor. 2, 3, sbr. PoBt. 18, 9. ») 1 Kor. 2, 2; sbr. 1, 18 n.n.
' ) Sjá 1 í,e«s. 1, 9 n.