Skírnir - 01.08.1917, Blaðsíða 69
8kírnir]
Enn um ættarnöfn á íslandi.
291
menn með ættarnafni, sem eru vanir að skrifa föðurnafn
sitt á undan ættarnafni sínu, annaðhvort fult eða skamm-
stafað. Þau eru þrjú þau skáldin Benedikt Gröndal, nefni-
lega Bendikt Jónsson Gröndal, Benedikt Sveinbjarnarson
Gröndal og Benedikt Þorvaldsson Gröndal. Ef hér væri
ekki föðurnafnið sett á undan ættarnafninu, yrði að bæta
við eldri, yngri, yngsti — og er þetta varla hent-
ugra. Það eru fieiri, er hafa tekið upp þessa venju, t. d.
Björn M(agnÚ8Son) Ólsen prófessor; þau systkin Ágúst
H(ákonarson) Bjarnason prófessoi, Brynjólfur H. Bjarnason
kaupmaður, Ingibjörg H(ákonardóttir) Bjarnason forstöðu-
kona, Lárus H. Bjarnason prófessor, Þorleifur H. Bjarna-
8on kennari; Torfhildur Þ(orsteinsdóttir) Holm skáldkona,.
Geir G(eirsson) Zoöga landsverkfræðingur, Geir T(ómasson).
Zoega rektor o. m. fl.
Það liggur í augum uppi, að sú venja er afar h e n t-
u g, og ætti að lögfesta hana sem fyrst, þ. e. a. s. það
®tti að skipa mönnum er eiga eða taka upp ættarnöfn að
sleppa ekki föðurnafninu, en setja það á undan ættarnafn-
inu, annaðhvort fullum stöfum eða skammstafað. Allir
föðurnafnavinir — sem eru ekki stækir ættarnafna-
undstæðingar og vilja fyrir hvern mun koma öllum ætt-
nrnöfnum fyrir kattarnef — hljóta að vera þessari venju
hlyntir.
Hún er einnig mjög góð að því er kvenfólkið snertir.
Það er hentugast, að kona sem giftist manni með ættar-
nafni taki upp þetta nafn. Ef eg þekki kvongaðan mann
er heitir Steintún, get ég ávarpað konu hans með sama.
nafni, ef eg hefi ekki séð hana áður eða þekki ekki eig-
inheiti hennar og föðurnafn eða hefi gleymt þeim. En þó að
konan þannig tæki upp ættarnafn bónda síns, þarf hún
ekki með því að segja sig úr ætt sinni eða »afneita for-
eldri sínu«, ef hún sleppir eigi föðurnafni sinu, og nefnir
siS »Sigríði Ólafsdóttur Steintún«.
Ef allir íslendingar ættu þrjú nöfn samkvæmt þessari
reglu, ættu þeir hinn ákjósanlegasta nafnasið.
19*