Skírnir - 01.08.1917, Blaðsíða 103
Skirnir]
Kitfregnir.
en væru nú í>auðar einsetumanna sökum norrænna víkinga<í. Að
vísu er þetta tekið eftir Dicuilus, en samt hefði mátt takast að
koma því í íslenzkulegri búning. Á 27. bls. stendur: »En jafn-
framt þessu sameinaði Haraldur konungur allan Noreg í eitt konungs-
ríki eða landsveldi, þótt sú sameining festi eigi djúpar rætur að sinni
og stæði eigi lengi«. í málsgrein þessari mætti bæði »landsveldi« og
5>8tæði eigi lengi« vel missa sig. Og mætti tilgreina svipuð dæmi endur-
tekninga og málalenginga svo tugum skiftir sbr. 75. bls. efsta málsgr.,
87. bls. neðsta málsgrein, 88. bls. miðgreinin, 108. bls. neðarl. o.
8. frv. í aths. á 97. bls. stendur þessi klaufalega málsgrein: »Orðið
óðalsbóudi hefur að víbu stundum verið notað á síðari tímum um
bændur á íslandi í sömu merkingu sem sjálfseignarbóndi, en venju-
lega að eins af sömu tilfinningu sem orðið »proprietær« áður« (sic).
Kaflinn um n.annhefndir á 117. bls. er vlða mjög óeðlilega orðaður.
í>ar 0g á 120 bls. mun eiga að lesa hermdarverk f. hefndarverk.
Á 141. bls. er hætt við, að sumum komi þessi málsgrein kynlega
fyrir sjónir: »Vorið eftir lentu íslendingar i ófriði við landsmenn,
en þeim tókst að verjast þeim, þótt þeir væru ofurliði bornir. . .«
Á 177. bls. nefnir höf. vald alþingis »allandsvald«, sem virðist vera
nýyrði í mesta máta óviðkunnanlegt. Sama máli gegnir um orðið
þrettán-þingskipunin á 178. bls.
Skal nú hór staðar numið, þótt mörg önnur dæmi óliðlegra
orðaðra málsgreina mætti tilgreina. Það var ekki ætlun mín að
fara í neir.n sparðatíning, en eg vildi óska þess vegna ritsins sjálfs,
ab höf. gerði sór framvegis meira far um að vanda búning og
orðfæri. Þorleifnr H. Bjarnason.
9
Vinnan, eftir Gnðm. Finnbogason dr. phil., 8blbr, 170 bls.
Kúkaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík 1917.
Eg veit það vel, að mörgum þykir ótrúlegt að rótt só orð
Jónasar Hallgrímssonar, er hann kveður svo:
»VÍ8Índin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð«.
Þó er það sannast sagt, að hór er fullkomlega rótt frá sagfc,
*natti þess og þaðan vænta, því að Jónas hefir verið djúpvitrari
flestum mönnum. Eg þykÍBt þess og fullvlss, að alþýða manna
Oiuni fallast á það, hvað sem hinum líður, ef rakið er málið. Tll