Skírnir - 01.01.1919, Síða 11
4
Björn M. Ólsen.
[Skírnir
könnuðir að eðlisfari, verða þeir að vanda vísindaaðferðir
(metode) sínar sem bezt. Þeir styðja sig sífelt við þær,
eins og börn, sem ganga með stokki, og þora aldrei að
sleppa sér. Og með þessu móti geta hinir beztu þeirra
unnið stórnytsamleg verk, safnað í eina heild og fullkomn-
að það, sem áður var á víð og dreif, hrúgað upp ógrynn-
um af áreiðanlegum fróðleik og skipað -honum í kerfi, rutt
akurinn og safnað korninu í hlöðu, þóVpeir sái þar engu.
Þá eru þeir menn, sem vefa tilfinningarnar inn í vis-
indaiðkanir sínar. Þeir eru.ekki ánægðir með frumleik-
ann, framkvæmdirnar, rannsóknina eina. Þeir spyrja um
lífsgildi efnisins, vilja að viðfangsefnið sé þeim um leið
hjartansmál, að það bæti sjálfa þá og heiminn. Þeim
hættir við að reisa sér hurðarás um öxl, verða fremur
prédikarar en könnuðir, laga sannleikann ósjálfrátt í hendi
sér eftir óskum sínum. Þeir eru oft betri menn en vis-
indamenn, og bezta verk þeirra stundum að segja gömul
sannindi með nýjum áhuga. En samt sjá þeir sífelt um,
að vísindi og líf fjarlægist ekki hvort annað um of, og
séu þeir afburðamenn að viti og sannleiksást, verða rit
þeirra dýrmætust allra.
Loks eru þeir menn, sem iðka vísindi af einskærum
rannsóknaráhuga, af þörfinni á að vita, skilja, greiða úr.
Að leita er þeim nauðsynlegra en finna, að finna meira
virði en fundurinn sjálfur. Þeir eru ekki einungis gáfu-
menn, heldur gáfulyndir. Þeir spyrja ekki um lifsgildi
né nytsemi efnisins, rannsóknin sjálf er þeim ærið lífs-
gildi. Ekkert efni er þeim nógu hugfólgið til þess að
rannsaka það án þess að reyna að finna nýjar brautir, og
.þeir geta lagt alúð við hvaða efni sem vera skal, ef i'rum-
leiki þeirra finnur þar réttan leikvöll. Þeim hættir líka
við að lenda út í ófrjósömum getgátum og fjarstæðum
kenningum, ef þeir kunna ekki réttar rannsóknaraðferðir;
og það er þeirra sök, sem oft vill verða í visindunum,
að fánýt efni eru ofrannsökuð og góðu vísurnar ekki nógu
oft kveðnar.
Það er nú ekki örðugt að gera sér grein fyrir, i hverj-