Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1919, Page 13

Skírnir - 01.01.1919, Page 13
 Björn M. Ólsen. [Skírnir bekknum. Það var eins og hann gerði sjer íþrótt úr erfið- leikunum. Hann vildi sýna, að öllum væri hægt að kenna, að það væri hægt að vera svo ljós, að hverjum aulabárð- iuum væri auðrötuð leiðin um völundarhús grískrar mál- fræði. Hann gat gert jafnómerkilegt mál og smábreyt- i.ngar á íslenzkri stafsetningu að kappsmáli, af því hann var viss um að sjá réttara en aðrir. Hann hugsaði meira um rökin fyrir málinu, en hvort málið sjálft var barátt- unnar virði. Alt á þetta sér eitthvað samsvarandi i vis- indastarfsemi hans. Hann sat yfir vísnaskýringum og leið- réttingum með samskonar gleði og yfir taflþrautum. Hann undi sér svo við tilgáturnar, að hann fór stundum að leita að þeirri næst sennilegustu, joar sem sú sennilegasta var fundin. Hann gerði vísindin að leikvelli skarpskygni sinnar, gat ráðist í að skýra það, sem öðrum finst óskýrandi, og leikið að vísindaaðferðum sínum sem handsöxum, eins og þegar hann fer að geta sér til manntals á íslandi af sögu Snorra um feldardálk Eyvindar skáldaspillis. En hvað tæp einstigi eða fáfarnar götur sem hann tróð í rannsókn- um sínum, komst hann samt altaf hjá þeirri hættu að lenda í ógöngum og staðleysum kákaranna. Þvi hann var ekki einungis könnuður að eðlisfari, heldur hafði hann setið sem lærisveinn við fótskör þess manns, sem heita mátti liöfuðprestur klassiskrar ritskýringar, Johans Nicolai Madvigs, hann hafði liaft náin kynni af Konráði Gísla- syni og lifað sig inn í rit hans og rannsóknaranda, og hann var víðlesinn i ritum liinna beztu þýzku ritskýranda. Þessi mentun hélt honum ekki einungis í skefjum, svo að hugsmíðaafl lians fór sjaldan með hann á flugstigu, heldur fylgdi hún honum út á flugstiguna, svo það mátti læra af aðferð hans, jafnvel þar sem niðurstaðan var vafasöm. Vísindin væru iila farin án slíkra manna. Þeir eru þar salt jarðar, án þeirra mundu þau missa sjónar á aðal- marki sínu, leit sannleikans vegna sannleikans, og verða ambátt nytseminnar, gríma hlutdrægninnar eða lijálm- skúfur hégómans. »Listin vegna listarinnar«, þetta mis- skilda og umdeilda kjörorð, á heima á öllum sviðum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.