Skírnir - 01.01.1919, Blaðsíða 13
Björn M. Ólsen.
[Skírnir
bekknum. Það var eins og hann gerði sjer íþrótt úr erfið-
leikunum. Hann vildi sýna, að öllum væri hægt að kenna,
að það væri hægt að vera svo ljós, að hverjum aulabárð-
iuum væri auðrötuð leiðin um völundarhús grískrar mál-
fræði. Hann gat gert jafnómerkilegt mál og smábreyt-
i.ngar á íslenzkri stafsetningu að kappsmáli, af því hann
var viss um að sjá réttara en aðrir. Hann hugsaði meira
um rökin fyrir málinu, en hvort málið sjálft var barátt-
unnar virði. Alt á þetta sér eitthvað samsvarandi i vis-
indastarfsemi hans. Hann sat yfir vísnaskýringum og leið-
réttingum með samskonar gleði og yfir taflþrautum. Hann
undi sér svo við tilgáturnar, að hann fór stundum að leita
að þeirri næst sennilegustu, joar sem sú sennilegasta var
fundin. Hann gerði vísindin að leikvelli skarpskygni sinnar,
gat ráðist í að skýra það, sem öðrum finst óskýrandi, og
leikið að vísindaaðferðum sínum sem handsöxum, eins og
þegar hann fer að geta sér til manntals á íslandi af sögu
Snorra um feldardálk Eyvindar skáldaspillis. En hvað
tæp einstigi eða fáfarnar götur sem hann tróð í rannsókn-
um sínum, komst hann samt altaf hjá þeirri hættu að
lenda í ógöngum og staðleysum kákaranna. Þvi hann
var ekki einungis könnuður að eðlisfari, heldur hafði hann
setið sem lærisveinn við fótskör þess manns, sem heita
mátti liöfuðprestur klassiskrar ritskýringar, Johans Nicolai
Madvigs, hann hafði liaft náin kynni af Konráði Gísla-
syni og lifað sig inn í rit hans og rannsóknaranda, og
hann var víðlesinn i ritum liinna beztu þýzku ritskýranda.
Þessi mentun hélt honum ekki einungis í skefjum, svo að
hugsmíðaafl lians fór sjaldan með hann á flugstigu, heldur
fylgdi hún honum út á flugstiguna, svo það mátti læra af
aðferð hans, jafnvel þar sem niðurstaðan var vafasöm.
Vísindin væru iila farin án slíkra manna. Þeir eru
þar salt jarðar, án þeirra mundu þau missa sjónar á aðal-
marki sínu, leit sannleikans vegna sannleikans, og verða
ambátt nytseminnar, gríma hlutdrægninnar eða lijálm-
skúfur hégómans. »Listin vegna listarinnar«, þetta mis-
skilda og umdeilda kjörorð, á heima á öllum sviðum.