Skírnir - 01.01.1919, Page 40
•■■Skirnir]
Veðurfræöistöð á íslandi.
33
vel sé, án þess að hafa fyrir sér safn af veðurspám til
samanburðar.
Mjög algeng og æfagömul er sú trú, að tunglið hafi
áhrif á veðráttuna, sem svo margt annað hér á jörðu.
Sé vond tíð fyrir nýmána, vonast menn eftir bata með
nýja tunglinu, og hafi verið góð tíð, óttast menn að bregði
til hins verra. Einstöku vísindamenn hafa stutt þessa
skoðun alþýðu og reynt að leiða rök að henni. En flestir
hafna henni og telja hindurvitui ein. Mun það og sanni
næst, að ef samvizkusamlega væri talið saman, hve oft
tungl-teiknin verða reglunni samkvæm og hitt, hve oft
þau bregðast, mundi hið síðarnefnda eiga sér eins oft stað.
En mönnum hættir til að mnna einungis, hvenær þau ræt-
ast og gleyma hinu gagnstæða. — Austurrískur maður,
Falb að nafni, hefir ritað bók til að sanna, að jafnan
fylgi veðurbreytingar tunglfyllingu eða tunglkomu. Kallar
hann slíka daga »kritiska« fyrir veðurfarið. Hann hefir
reynt að sanna mál sitt með fjölda af dæmum og fengið
eigi allfáa á sitt band. En gallinn er, að Falb tínir að
eins til þau dæmi um veðrabrigði, sem »passa í hans
kram«, en lætur hinna ógetið. Hafa aðrir sýnt fram á,
að veðurbreytingar, sem Falb telur að fylgi »höfuðdögum«
sínum, eiga sér að minsta kosti eins oft stað á milli þeirra.
•Og þó telur Falb allar veðurbreytingar, sem verða 3 dög-
um fyrir eða eftir hvern »höfuðdag«, verða af hans völd-
um. Við það verða »höfuðdagarnir« tvisvar 7 á hverjum
tunglmánuði, eða 14 dagar af hverjum 28 á árinu! Er
því eigi að furða, þótt Falb finni mörg dæmi til að sanna
mál sitt. — Þrátt fyrir alt þetta er engan veginn ómögu-
legt, að tunglið hafi nokkur áhrif á gufuhvolf jarðarinnar
og þá veðrabrigði. Er nokkurn veginn sannað, að reglu-
bundin breyting verði á loftþyngdinni í samræmi við af-
stöðu tungls og jarðar. Er það eitt af viðfangsefnum
veðurfræðinga að leita vissu i þessu efni.
Hér skal eigi lengra farið út í veðurteikn þau og
veðurapár, sem menn alment »taka mark á«. Er von-
andi að þeir, sem safna þjóðlegum fræðum, hirði þær með
3