Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1919, Síða 52

Skírnir - 01.01.1919, Síða 52
'Skirnir] Þýðingar. 45 lista, sem til er með þjóðinni. Einmitt sá meðferð, sem nú viðgengst á mentamönnum okkar, er bein liætta fyrir þjóðina og með þvi lika alþýðumenninguna. Þjóðin er lífsheild, og engan part hennar má bera fyrir borð, svo að hinir bíði ekki halla við. Eins og við megum ekki vanrækja stjórnmál okkar, þó að þeirra gæti ekki í heims- pólitíkinni, né fjármálin, þó að öll þjóðareignin sé ekki meiri en eigur minni háttar auðkýfings, sem varla gætir í kauphöllinni i New-York, megum við heldur ekki kyrkja æðri mentunina í landinu, þó að hún gnæfi ekki hátt. Ef allir væru jafnmentaðir og á sama stigi, ef allir ættu að láta síðasta sauðinn í rekstrinum skapa sér rásina, þá mundi seint miða. Við verðum að koma okkur upp for- ingjum og sérhæfðum forgöngumönnum til heimanota, þó lítil von sé til, að orðstír þeirra fari víðar. En svo mega mentamennirnir heldur ekki missa sjónar á þeim tak- mörkum, sem eru þjóðinni nauðsynlegust og við. hennar hæfi. Það verður að vera náin samvinna milli allra stétta i landinu, sem nokkuð vilja fyrir menninguna gera. Um það mega engin flokkaskifti vera. IV. Ef nánar á að skýra í hverju alþýðumentun Islend- inga er fólgin og hvað gefur henni gildi sitt, þá er skýr- ingin i einu orði: s j á 1 f m e n t u n. Skólar okkar bera i engu af skólum annara þjóða, nema siður sé. Það er viðleitni alþýðunnar sjálfrar, hvað menn halda lengi áfram að menta sig, sem veldur yfirburðum hennar. Og aftur hér eru það eðlilegar orsakir, sem valda. Það er ekki nein tiktúra af íslendingum, að þeir eru ekki allir skólagengnir. Það er strjáibygðin, sem mestu veldur, fátæktin surau. En einmitt hér hafa örðugleik- arnir að mörgu leyti snúist til góðs. Og mikill er ábyrgð- arhluti þeirra manna, sem vilja rísa gegn forlögunum og staðháttunum, og koma upp barnaskólum í hverjum hreppi <eftir útlendri fyrirmynd, í stað þess að hlúa að heimilis-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.