Skírnir - 01.01.1919, Page 90
ÍSkii'níi:!
Éitfíégníi
ÖS
ugar að Lúthersæfisögum. Þó var eugin vauþörf á þessari bók.
Stórmeunum kirkjunnar er meiri hætta búin af kreddum æfisögu-
höfundanna, sem oftast eru prestar eða guðfræðingar, en fiestum
öðium; hafa liöfundarnir löngum sett siun elgin svip á andlit þeirra.
Oft hefir Lúther orðið illa úti. Á síðari árum hefir æfiferill hans
verið rannsakaður frá rótum og meiri alúð verið lögð við að fiuna
hið sanua en áður eru dæmi til. Margt nytt befir þá komið í ljós.
Er Lúther nú allur með öðrum svip en áður var. A nyju rann-
sóknunum bj'ggir sr. M. J. sögu sína.
Æfisagan er rituð fyrir alla alþýðu manna. Frásögnin er fjör-
ug og clnið þrauthugsað. Drættirnir fáir og skyiir. Lúther stend-
ur ljóslifandi fyrir lesandanum, kostir lians og gallar. Með sömu
hreinskilni er sagt frá afskiftum hans af bændauppreistinni og
framkomu hans á r/kisþinginu í Worms. Höf. tekst ágætlega að
rúma í einni samfeldri mynd andstæðurnar / eðli Lúthers, j>Lúther
sem opinberara 1/fsins, str/ðshetjuna ósigrandi, ritdeilugarpinn og
framkvæmdasköruuginn, og á liinn bóginn heimilisföðurinn Lúther,
viðkvæman, kyminn, ístöðul/tinn og draumlífan«. Lúther er há-
germönsk trúar- og þjóðhetja. Og heimilishetja; menn skilja hvað
eg á við, þótt málið eigi ekki orð yfir það, líklegast af þv/ að
fæstar sögur fara af þeim hetjunum, þótt flestar séu.
Eftir því sem mór er bezt kimnugt er bók þessi be/.ta alþýðu-
ritið um Lúther, sem út kom á Norðurlöndum siðbótarafmælið
mikla 1917. Mynd sr. Magnúsar af Lúther er listaverk, en engin
Ijósmyud. Hann hefir lagt sál sína í hana. Sumstaðar virðist ljóst
af frásögninni að sr. M. J, er afbragðs teiknari. Mór er og næst
að halda, að það þurfi flestar sömu gáfur til að rita vel æfisögu
manns og teikna audlit hans.
Málið er ljóst og lipurt. Setningarnar stuttar og snjallar. Þv/
leiðara er að það skuli ekki altaf vera hreint. Eg nefni t. d, : bls,
8 »Þeir voru móttækilegir mjög fyrir hinum nýju hugmyndum«,
bls. 14 »Hann var djúpt trúhneigður«, bls. 23 »betlimunkareglan,
sem Lúther undirgekst«, bls. 35 »Fræin að uppreisn hans . . . eru
hér þegar lögð«, bls. 43 »Hin sauna yfirbóc . . . umspennir alla
æfina«, bls. 47 »Lúther mætti fyrir sendiboða páfans« o. fl. Gall-
ar á rithætti oru tvenuskonar, læknandi og ólæknandi. Lýtin á
rithætti sr. M. J. eru öll af fyrri tegundinni. — Prentvillur eru
fleiri e» góðu hófi gegnir, en engar hættulegar.
Ásg. Ággeirsson.
k*