Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 62

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 62
60 VALSBLAÐIÐ telja og hafði og hefur raunar ekki síðan, varið neitt í líkingu við þetta. Allt þetta hjálpaði til við að brjóta okkur niður. Hermann Gunnarsson: Ég hygg að menn hafi álitið liðið orðið það gott að það væri nánast formsatriði að ljúka mótinu, titillinn væri í höfn, sem sagt algert vanmat á andstæðingnum, og það gengu allir inn á völlinn í þetta skipti öruggir um að vinna þennan leik létt. Síðan, þegar menn sáu að allt var að komast í óefni, vorum við bara ekki menn til að rétta við. Þarna kemur til að liðið er ungt, mjög ungt, og hefur ekki þá reynslu, sem þarna hefði ör- ugglega bjargað liðinu frá tapi. Leik- reynt lið hefði aldrei látið fara svona með sig. Gunnsteinn Skúlason fyrirliði: Þarna fór sjálfsagt saman mikil óheppni hjá okkur með allt sem við reyndum í leiknum og eins býður mér í grun, að við höfum mætt til leiks of öruggir um að það væri nánast formsatriði að ljúka leiknum. Og svo þegar við sáum alvöruna tókst okk- ur ekki að laga þetta, aðrar skýr- ingar hef ég ekki getað fundið á þess- um furðulega leik. Nú og svo auð- vitað þessi stórkostlega maxkvarzla Guðmundar Gunnarssonar í ÍR-mark- inu, hún kom okkur algerlega í opna skjöldu. Að maðurinn skyldi verja 7 vítaköst í leiknum segir sína sögu um hvað gerðist. Ofan á þessa frá- bæru markvörzlu bættist svo það, að allt virtist heppnast hjá skotmönn- um lR. Hvert skotið af öðru upp í vinklunum eða þá útvið stangirnar, næstum óverjandi og ég man vart eftir annarri eins skotnýtingu hjá nokkru liði fyrr eða síðar. Þetta var allt á þann veg að okkur var um megn að rísa gegn þessu. Ólafur Benediktsson: Við vorum í fyrsta lagi allt of ör- uggir um að vinna þennan leik létt. Stórsigurinn yfir FH stuttu áður virt- ist hafa þau áhrif, að við álitum okk- ur einhverja ofsakarla, sem gætum allt og værum ósigrandi. Nú mark- varzla Guðmundar í iR-markinu var stórkostleg og hann átti meiri þátt í að brjóta okkur niður en nokkuð annað. Svo vil ég kenna mér um stóran þátt í þessu tapi með slæmri markvörzlu, alveg hörmulegri. Menn voru að segja að þetta hefðu verið óverjandi skot, en það er bara ekki alls kostar rétt, ég átti að geta tekið miklu fleiri bolta en mér tókst. Mér var bent á það í leikhléinu að öll skot þeirra væru uppi og ég fann þetta einnig sjálfur í fyrri hálfleik, en ég fann mig bara aldrei allan leikinn. Nú vörnin okkar á sjálfsagt sinn þátt í þessu, því að hún hefur varla leikið verr en þarna. Reynir Ólafsson þjálfari: Ég var alltaf hræddur við þennan leik. Bæði var það, að Val hefur allt- af gengið frekar illa með ÍR og eins óttaðist ég að velgengnin í leiknum við FH myndi koma piltunum upp í skýin, sem og varð raunin. Ég fann að liðið fór óvenju bjartsýnt inn á völlinn og það kann aldrei góðri lukku að stýra, enda kom það í Ijós að eng- inn reis upp úr meðalmennskunni, hvorki útispilarar né markmenn. Ég reyndi báða markverðina, en ég hygg að þeir boltar sem varðir voru hafi ekki náð tölunni 6. Þetta tap 24:15 er það mesta sem Valur hefur fengið síðan ég tók við þjálfun liðsins. Ef ég ætti að taka eitt orð yfir þetta þá varð þarna liðsbrot, algert liðsbrot. Ég kallaði þetta þessu nafni strax eftir leikinn og þótt maður hafi farið yfir þennan leik í huganum oft og mörgum sinnum hef ég ekki getað fundið aðra skýringu á þessu. Þetta sýnir liði, sem er komið í seilingu við titil, hvað það þarf að varast andstæðingana mikið í stað þess að vanmeta þá. Það þarf að bera full- komna virðingu fyrir andstæðingn- um hverju sinni, hver svo sem hann er. Það hefur mér fundizt vanta í stóran hluta liðsins, ég segi ekki allt liðið en stærri hlutinn á það til að vanmeta andstæðinginn og það vita allir sem nálægt íþróttum hafa kom- ið hvað slíkt þýðir. Ólafur H. Jónsson: Eftir á, þegar ég fór að hugsa um þennan leik, fannst mér þetta beinlínis vera örlög. Það er í eina skiptið eftir leik, sem ég hef haft þessa tilfinningu. Það var alveg eins og þetta ætti bara að gerast. Sjáðu til, það vantaði ekki að við kæmumst í færi, en þá annað hvort hittum við ekki markið eða þá að skotin voru varin, jafnvel 7 vítaköst. Hvað er svona lagað ef ekki örlög? Ef við hefðum engin tækifæri skapað okk- ur þá er lítið við þessu að segja ann- að en klaufaskapur, en þegar maður veður í marktækifærum, dauðafærum hvað eftir annað og ekkert tekst, hvað er það? Þetta gerist svo sára sjaldan í handknattleik, að þetta virð- ist mér sláandi dæmi um örlög. Ég er ekki á þeirri skoðun, að um tómt vanmat hafi verið að ræða á ÍR-ing- unum hjá okkur. Þótt við spiluðum ekki góðan leik, þá áttum við mýgrút af marktækifærum, sem fóru svona eins og ég sagði í upphafi, þannig að við lékum okkur eins vel í gegnum ÍR-vörnina og flestar aðrar varnir, en dæmið gekk bara ekki upp. Stefán Gunnarsson: Það vantaði allan neista í liðið, á því leikur enginn vafi. Liðið var alls ekki líkt því sem það hafði verið í öllum leikjum mótsins fram að þess- um leik. Og mér fannst sem þessi neisti kveiknaði ekki í þeim leikjum, sem eftir voru, svo sem gegn Víkingi og Efterslægten og svo ég tali ekki um úrslitaleikinn við FH. Sjálfsagt hafa menn verið orðnir þreyttir og jafnvel leiðir, vegna of margra æfinga og leikja þarna í lokin. Ég læt mér detta þetta í hug. Ég held að vanmat hafi ekki komið þarna til greina. Við vorum búnir að leika oft við ÍR og alltaf gengið illa með það lið, svo að ég held að það komi ekki til greina. Hins vegar er ég á því að markvörð- ur ÍR hafi brotið okkur niður með stórkostlegri markvörzlu, sérstaklega í sambandi við þessi 7 vítaköst sem hann varði, og þar átti sér stað mikið slys og á ég þar við að það reyndu allir að taka vítaköstin, þegar einum brást kastið, kom sá næsti. Þetta er rangt. Það á að láta beztu vítaskytt- una taka vítið aftur þótt honum mis- takizt einu sinni eða tvisvar. Jón Karlsson: Ég hef hugsað mikið um þetta, en þó hef ég ekki fundið neina eina við- hlýtandi skýringu á þessu ennþá. Og ég treysti mér ekki til að gefa neina ákveðna skýringu á þessu. En ef við lítum á leikinn í heild, þá sjáum við að varnarleikurinn hjá okkur var ekki sá sami og áður í mótinu. Við skor- um, sjáðu til, 15 mörk, sem er ekki svo lítið, en við fáum bara á okkur 24. Slíkt hafði ekki gerzt og hefur ekki aftur gerzt. Vissulega voru ÍR- ingarnir sérstaklega heppnir með skotin, svo heppnir, að þeir hafa aldrei náð öðru eins, en það er alveg sama, við áttum að geta komið í veg fyrir mörg mörk þeirra. Nú svo má nefna vítaköstin okkar. Að láta mark- vörð verja 7 vítaköst nær engri átt. Þar var einnig galli í framkvæmd- inni, að láta ekki vítaskyttu liðsins taka vítin aftur þótt það fyrsta hafi brugðizt. Það voru settir 3 eða 4 menn í að taka vítin og það finnst mér allt- af rangt. Ég útiloka hins vegar þá kenningu sumra að við höfum van- metið ÍR-ingana, það tel ég ekki koma til greina. Hitt má vera að við höf- um ofmetið sjálfa okkur og verið í sigurvímu eftir stórsigurinn yfir FH stuttu áður. Sá leikur setti okkur upp í skýin. Þá er þess einnig að gæta, að þetta er einn af þessum leikjum, þar sem allt heppnast hjá öðru liðinu en ekert hjá hinu og ég sagði einhvern tíma í fyrra „Colchester vann líka Leeds“ og við vitum að það getur allt gerzt í íþróttum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.