Valsblaðið - 11.05.1972, Side 78
76
VALSBLAÐIÐ
hlotið sömu örlög. Og það þykir
Bobby heldur leitt, því að Portúgalar
eru þeir mótherjar, sem hann virðir
mest. Mörkin tvö, sem hann skoraði
gagn þeim í undanúrslitum HM 1966
eru sennilega þýðingarmestu mörk,
sem hann hefur skorað. Hið síðara,
aðeins tíu mínútum fyrir leikslok,
hlýtur að hafa sært sérhvert portú-
galskt hjarta. En Charlton segir: —
Þegar ég gekk til baka að miðlínunni
hljóp Augusto til mín til þess að taka
í hönd mína vingjarnlega og óskaði
mér til hamingju. Af öllum knatt-
spyrnuliðum, sem ég hef leikið gegn,
eru Portúgalar í sérflokki hvað
íþróttamennsku áhrærir.
Og þessu augnabliki lýsir Charlton
þannig: — Allt í einu byggðum við
upp frábært mark. Knötturinn barst
frá vallarhelmingi okkar til Ball, til
Moore og síðan til Cohen þvert yfir.
Cohen spyrnti langt fram hægra meg-
in — Hurst náði knettinum á fullri
ferð og lauk spretti sínum fyrir fram-
an bakvörðinn. Hann var í góðri að-
stöðu til að skjóta á mark — en eig-
ingirni var ekki til. Hann leit upp
andartak — lagði síðan knöttinn aft-
ur í opnu fyrir mig til þess að smella
honum í markið. Wembley sprakk.
Portúgalar gátu búizt við einhverju
slíku frá Charlton. Árið 1958 í ein-
um sínum fyrsta landsleik skoraði
hann bæði mörkin í sigurleik Eng-
lands gegn Portúgal 2:1.
Wembley-leikvangurinn hafði einn-
ig sprungið fjórum leikjum fyrr í
HM, þegar Charlton skoraði fyrsta
mark Englands í keppninni. England
hafði hafið keppnina með 90 mín-
útna leiðindaleik gegn Uruguay —
án marka. Þéttsetinn leikvangurinn
af áhorfendum hafði beðið í 38 erf-
iðar mínútur gegn Mexikó — lágt
skrifuðu liði — en ekki virtist bóla
á marki, frekar en gegn Uruguay.
En þá — og látum Bobby segja frá:
— Ég fékk knöttinn á miðjunni frá
Hunt. Einhver leikflétta greip mig.
Ég einlék mig frían — fintaði til
vinstri og til hægri og spyrnti allt í
einu af 25 metrum. Markvörður Mexi-
kó, Calderon, hafði enga möguleika
til að verja. Ég leit ekki einu sinni
upp til að sjá hvar markið var —
spyrnti aðeins eins fast og ég gat í
áttina að markinu. Þrumuköllin
klingja enn í eyrum mínum.
Eitthvað greip mig, segir Charl-
ton. Það hlýtur að vera, því Charlton
skorar of mikið af slíkum snilldar-
mörkum til þess, að hægt sé að ræða
þar um einhverja heppni.
Nokkrum vikum fyrr hafði hann
skorað eitt slíkt þrumumark gegn
Júgóslafíu í æfingaleik fyrir HM. Og
þegar hinn hægláti Charlton segir
sjálfur: — Ég verð að viðurkenna
að þetta er mark, sem ég er stoltur
af — þá hlýtur það að vera eitt af
beztu mörkum hans. Dæmið sjálf.
— Ég var um 25 metra frá mark-
inu, þegar ég fékk knöttinn og ég
leit snöggt í kringum mig til að sjá
hvort ég gæti sent til einhvers sam-
herja. Það var enginn, en Jetvic, ann-
ar bakvörður þeirra, var fyrir fram-
an mig. Ég ákvað samstundis að
reyna markskot, því ef það heppn-
aðist, mundi markvörðurinn ekki sjá
knöttinn. Ég spyrnti í átt að mark-
inu og knötturinn small undir þver-
slána efst í netmöskvana. Það er
furðulegt hvað slíkt tækifæri heppn-
ast oft.
Og það er það. Spyrjið leikmenn
Tottenham. Minnið þá á leikinn 1963,
þegar Dave McKay fótbrotnaði í fyrra
skiptið. Það var í Evrópukeppni bik-
arhafa, sem Tottenham hafði sigrað
svo glæsilega árið áður.
Síðari leikurinn og tíu leikmenn
Tottenham börðust hetjulega — Mc-
Kay meiddist eftir aðeins átta mín-
útur — og höfðu enn yfir samanlagt.
Þá skipti M[att Busby, framkvæmda-
stjóri Manch. Utd., Charlton frá
vinstra kanti inn á miðjuna. Tuttugu
mínútur voru eftir. Og Old Trafford
nötraði af gleði, þegar Charlton skor-
aði tvö mörk — hið síðara aðeins
tveimur mínútum fyrir leikslok.
Hið fyrra hafði komið, þegar Pat
Crerard sendi Charlton knöttinn.
Hann var á fullri ferð í átt að mark-
inu — og án þess að líta upp spyrnti
hann knettinum meter frá vellinum
með vinstri fæti og Bill Brown hafði
engin tök á að verja.
Brown, sem er mikill aðdáandi
Charlton, var ánægður að þurfa ekki
að standa í marki, þegar Manch. Utd.
vann Tottenham 5:1 1965. Slík mörk,
sem hann skoraði þá, hafa fáir leikið
eftir.
Knattspyrnuferill Bobby Charlton
hefur þó ekki alltaf verið dans á rós-
um — en oftast. Stundum hafa
meiðsli sett strik í reikninginn og
1964 var Charlton settur úr enska
landsliðinu. Mánuði síðar — svona
til að fagna endurkomu Manch. Utd.
í Evrópukeppni -—• skoraði hann þrjú
þrumumörk gegn Borussia í 6:1 sigri
— á útivelli!
Bobby Charlton hefur verið kjör-
inn „knattspyrnumaður Englands“ —
„knattspyrnumaður Evrópu“ og hann
á áreiðanlega eftir að skora mörg
minnisstæð mörk enn. Hann er nú
nýlega 34 ára og hefur sjaldan leikið
betur og það hefur komið fram í
leik Manchester United á þessu leik-
tímabili. Þegar þetta er skrifað hef-
ur Manch. Utd. góða forustu í 1. deild
og ef til vill leikur því Bobby Charl-
ton í Evrópu á ný næsta keppnistíma-
bil.
&%«?>
Málningarverksmiöjan Harpa hefur þá ánægju aö tilkynna viöskiptavinum sínum, að
komnir eru á markaöinn alveg framúrskarandi fallegir litir til innanhússmálnignar
Hrimhvítt - Ljómagult - Hörgult - Hunangsgult - Sefgrant - Dökkgrant - Gultokkur - Dökkgrátt'