Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Qupperneq 54
26
ólafur s. thorgeirsson :
liýsi þaö, sem þar stendur enn, og hann mun hafa flutt
inn í um nýár 1902 og ber nafn hans—Olajson Block. I
því eru íbúðir fvrir 18 tjölskyldur. En neösta gólf alt
ætlaö til verzlunar nota. Þaö notaði hann alt einn og
veitti ekki af plássi, þó rúm sýndist mikiö í samanbnröi
við það, sern hann hat'ði áður haft. Eig'i vantaði fólk, er
leigja vildi á þessum hentuga stað og hefir eign þessi
reynst hin arðsamasta.
En þó vel gengi verzlanin, var þó lífið eigi stríðlaust,
eins og gengur, fremur þeim hjónum en öðrum.
Þau eignuðust dóttur eina barna, hinu efnilegustu stúlku,
sem nú er eina yndi móður sinnar. En heilsa hennar
var nokkur ár í hinni mestu hættu. Reyndi þá á þolin-
mæði foreldranna stórkostlega, en til einkis var sparað,
sem efni og örlæti gátu í té látið, og var helzta læknis í
landinu vitjað hvað eftir annað, til þess að bægja frá
hættunni. Enda tókst það með nákvæmni og þraut-
seigju.
Þóvirtist líf frú Elínarsjálfrar verai enn meiri hættustatt
um langan tíma. Varð hún tveim sinnum að leita burtu
suður í ríki langar leiðir og ilvelja tíma all-langa á heil-
brigðisstofnan til að afla sér heilsubótar. Þurfti til þess
kjark mikinn og áræði af hálfu þeirra hjóna beggja, því
að minsta kosti annað skiftið voru veikindin á svo háu
stigþaðeigi virtust nema litlar líkur til, að þau fengi aftur
að sjást í lifanda lífi. En hér var enn alt í sölur lagt,
sem til þurfti og ekkert sparað, sem unt var að veita sér.
Enda komst frú Elín til hetri heilsu aftur en hún sjálf
hafði gjört sér í hugarlund og nýtur hennar enn.
Loks kom röðin að sjálfum honurn, sem notiö hafði
hinnar beztu heilsu öll þessi ár, aldrei kenl neins meins
og ekki orðið misdægurt, livað sem á gekk. Árið 1906,
28. janúar um veturinn, fekk Gísli heitinn slag og misti