Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Blaðsíða 65
SAFN
TIL
LANDNÁMSSÖGU ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI.
Nokkrir þættir um íslendinga austan viö
Manitobavatn og umhverfis Grunnavatn.
Eftir Jón JóNSSON frá Sleðbrjót.
Ritað að mestu eftir sögnum gamalla landnema.
FORMÁLI. — Fyrir tilmæli útgefanda Almanaksins, hef eg
tekist á hendur aö færa í ritmál sögmþætti þá er hér fylgja á eftir.
Mér var það ljóst að eg stóð verr að vígi en að minsta kosti flestir
þeir er ritað hafa samkyns þætti í almanakið áður. Þeir hafa mest-
an, eða allan tímann, er sagfan nær yfir, verið í flokki þeirra er frá
er sagt, og h afa því verlð sjónarvottar að flestum viðburðun-
um. En eg; het dvalið að eins 6 ár hér í landi, og: þess vegna orðið
að byggja algjörlega ásögusögnum annara, og er þá miklu hættara
við missögnum og erviðara að draga rétta drætti í mynd bygðarlíts-
ins, heldur en er fyrir þá er lifað hafa viðburðina. t>etta vona eg
góðgjarnir lesendur líti réttilega á, og bæti um þar er brestir kunna
að tinnast. Og er sú bótin bezt, ef þeir er betur víta, vildu setida
útgef. Almanaksins, eða mér, leiðjéttingar á því er missagt kynni að
vera, er þá mundu síðar verða birtar í almanakinu. Málið á þáttum
þessum býst eg við að standi illa að vígi til að mæta fyrir dómi ís-
lenzkra málfræðinga, þeirra er vel'kunna málið. Það er austfirzkt
alþýðumál. En eg hef eigi betra að bjóða.—J.J.
Takmörk bygðanna.
BygS íslendinga austan Manitoba-vatns byrjar, að
sunnan, norSan viS línuna milli Twsb. 17 og 18. En
fátt er af íslendingum, er búsettir eru í Twsh. 18. 2