Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Page 93
ALMANAK 19lO.
65
bændaheimilum ,og þó víðar sé leitaö; eru í því enskar
og íslenzkar bækur, og nokkrar á ýmsum öðrum Norð-
udandamálum. — Þórarinn Guðlaugsson Breckmann,
sonur Guðlaugs Þorleifssonar og Karítasar Guðmunds-
dóttur, er lengi bjuggu að Klungurbrekku á Skógar-
strönd; kona hans Þorbjörg Einarsdóttir. Þórarinn
kom frá Winnipeg, var í Indíána-stríðinu, ejr Riel var
unninn, og keyrði vistir hermanna; var síðan nokkur ár
kjötsali í Winnipeg. Hann er talinn einn af mestu
efnamönnum bygðarinnar. — Hér skal einnig getið
bræðra hans tveggja, þótt þeir kæmi eigi fyr en 1901:
Kristján Breckman. Hann nam land, en brá búi og
seldi land sitt, og er nú bókhaldari hjá Jóhanni kaupm.
Halldórssyni á Oak Point. Kona hans er Guðrún Ól-
afsdóttir Freeman. — Guðmundur Breckmann. Hann
nam land og keypti annað og býr þar, og er giftur
Jakobínu Guðjónsdóttur ísleifssonar, föður ísleifs, er
áður er frá sagt. Guðmundur hafði unnið víðsvegar
með enskum bændum áður en hann flutti í bygðina.
Þeir bræður komu til Ameríku 1883 °? höfðu aðsetur
í Winnipeg með móður sinni, sem enn lifir og er hjá
Kristjáni. Kristján er hálfbróðir þeirra, sonur Guð-
mundar seinni manns Karítasar. Guðmundur Breck-
mann hefir átt mikinn og góðan þátt í félagsmálum
bygðarinnar, því hann stendur þar flestum framar að
félagslyndi ,og þekkingu. — Sigurður Jónsson frá
Bygðarholti í Lóni. Flutti í bygðina úr Siglunessbygð.
Sigurður er sonur Jóns hrejppstjóra og Dbrm. í Bygð-
arholti Jónssonar prests á Kálfafellsstað. Kona Sig-
urðar er Guðrún Vigfúsdóttir frá Flatey á Mýrum.
Móðir Sigurðar var Ragnheiður dóttir Gísla er bjó á
Brekku í Lóni Arnarsonar prests Gíslasonar á Stafa-
felli — Magnús Ólafsson Freeman, sonur Ólafs Gnun-
arssonar frá Vatnshlíð í Skagafirði. Kona hans er
Helga Jónsdóttir Sigurðssonar frá Ferstiklu í Borgar-