Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Side 96
68
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON :
ardal og stundaöi þar járnsmíöi, og í Skagafirði líka.
Giftist 1888 Helgu Grímsdóttur frá Egg í SkagafirSi,
og reisti bú á Stóragerði í Óslandshlið. Fluttist vestur
um ihaf 1890 og settist að í Winnipeg; þar andaðist
kona hans árið 1893. Næsta ár 30. Okt giftist hann
aftur núverandi konu sinni Guðbjörgu Guðmundsdótt-
ur Jónssonar frá Lýtingsstaðakoti i Skagafirði. Byrj-
aði verzlun í Winnipeg 1897 og verzlaði þar í 5 ár;
flutti siðan til Oak Point og byrjaði þar verzlun rúma
mílu austar en þorpið er nú á Oak Point. En þegar
jámbrautin kom flutti hann verzlun sína að mestu inn í
þorpið. Nú verzlar hann bæði þar og heima á bújörð
sinni. — Pétur Árnason bónda Árnasonar í Hörgskoti í
Húnavatnssýslu. Móðir Péturs var Ingibjörg Jónadabs-
dóttir Grímssonar frá Búrfelli; var hún systir þeirra
brærða Jens og Jósefs Líndal, er áður er frá sagt.
Pétur flutti vestur um haf til Winnipeg árið 1887 með
hejtmey sinni Gróu Hallgrímsdóttur frá Meðalheimi í
Húnavatnssýslu, er hann giftist litlu síðar. Lifir einn
sonur þeirra, Hallgrímur að nafni. Pétur nam land í
Þingvallanýlendu, en flutti þaðan aftur til Winnipeg
vegna féleysis. Eftir tvö ár flutti hann til Dakota, en
það fór á sömu leið; hann flutti aftur til Winnipeg og
var þar enn tvö ár. Þaðan fór hann til Álftavatns-
bygðar, nam þar land og keypti annað. Konu sína
misti Pétur 1899, en giftist aftur 1901 Helgu Ragnheiði
Andrésdóttur, er lengi bjó að Hvassafelli í Norðurár-
dal, Guðmundssonar bónda á Sámstöðum í Hvítársíðu;
ep móðir Helgu var Kolfinna Oddsdóttir frá Síðu i
Húnavatnssýslu. Árið 1903 var Pétur settur af fylkis-
stjórninni lögregluþjónn fProvincial Constable) í fylk-
inu, “og gegnir því embætti enn þegar með þarf.” —
Sigurjón Jónsson skipstjóra frá Hrannprýði í Hafnar-
firði; kona hans er Guðrún Jónsdóttir. Komu þau frá
ííslandi 1886, voru fyrst í Winnipeg, fóru síðan til