Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Page 148
ÁGRIP
af reglugjörð um heimilisréttarlönd í
Canada Norðvesturlandinu.
Sérhver manneskja, sem fjölskyldu hefir fyrir að sjá, og sérhver
karlmaður, sem orðinn er 18 ára, hefir heimilis rétt til fjórðungs úr
,,section“ af óteknu stjórnarlandi í Manitoba, Saskatchewan eða
Alberta. Umsækjandinn verður sjálfur að koma á landskrifttofu
stjórnarinnar eða undirskriftstofu í því héraði. Samkvæmt umboði
og með sérstökum skilyrðum má faðir, móðir, sonur, dóttir, bróðir
eða systir umsækjandans, sækja um landið fýrir hans hönd á hvaða
skrifstofu sem er.
Shyldur. — Sex mánaða ábúð á ári og ræktun á landinu í þrjú ár.
Landnemi má þó búa á landi, innan 9 mílna frá heimilisréttarlandinu,
ogf ekki er minna en 80 ekrur og- er eigmar og- ábúðarjörð hans eða
föður, móðir, sonar, dóttur bróður eða svstur hans.
I vissum héruðnm hefir landneminn, sem fullnægt hefir landtöku
skyldum sínum, forkaupsrétt (pre-emption) að sectionarfjórðungi
áföstum við land sitt. Verð $3 ekran. Skyldur :—Verður að sitja
ömánuði af ári á landinu í 6 ár frá því er heimilisréttarlandið var
tekið (að þeim tíma meðtöldum er til þess þarf að ná eigmarbréfi á
heimilisréttarlandinu, og 50 ekrur verður að yrkja aukreitis.
Landtökumaður, sem hefir þegar notað heimilisrétt sinn og getur
ekki náð forkaupsrétti (pre-emption) á landi, getur keypt heimilis-
réttarland í sérstökum héruðum. Verð $3 ekran. Skyldur :
Verður að sitja 6 mánuði á landinu á ári í þrjú ár, rækta 50 ekrur
og reisa hús, $300.00 virði.