Félagsrit - 01.01.1915, Síða 6

Félagsrit - 01.01.1915, Síða 6
6 komi þjóðunum frá reglulegri sjómnnnastéit, af ]>eim ástæðum, sem þegar er á bent. Þetta er öðruvísi hjá bændastéttarfólki. Þar alast börnin upp á aðskildum heimilum við ýms störf, er miða til bjargarframleiðslu fyrir alidýrin og mest við glæðing og viðhald lífs. Leikir barnanna miða til hins sama; þau gera leikföng sín að búpeningi og annast hann á ýmsa vegu. Er þau fá þroska til, verða störfin margbreyttari, og mörg þeirra krefja umhugsunar og fyrirhyggju langt fram í tímann. Ungviðið þarf að- hjúkrunar árum saman, áður en það verður að ávaxta- samri skepnu, og jörðina þarf að erja og undirbúa löngu áður en ávextarins er von. Við þetta þrokast kraftar sálar og líkama; og þótt oft sé við smá efni búið, verður sveitalífið börnunum oftast heilnæmara en kaupstaðarlífið, þótt nokkurn veginn nóg sé við að lifa. Fatlist sjómaðurinn frá vinnu nokkra mánuði, er heimilið venjulega að öllu þrotið; en þótt svo vilji til um einyrkja sveitabónda, dregur hans heimili oftast fram lííið á nytjum búsins. Fjölbreytni starfanna, fyrirhyggjunauðsynin, að störfin fara fram á landinu, bundin við einstök heimili, og eru flest innifalin í því, að glæða Iíf jurta og dýra, er ástæðan til þess, að sveitafólkið verður fjöllhæfara, fær innilegri velvild til landsins, sem nefnd er ættjarð- arást, meiri staðfestu i ráði sínu, fjárhagshygni, og hugsunarhátturinn verður mýkri. Lífshættan, sem sjó- maðurinn sífelt hefur fyrir augum, á sinn þátt í að gera hugsunarhátt hans óþjálan. Mörg dæmi mætti benda á, er sýna, hve drjúgt oft drýpur af litlu sveilabúi, og hve miklu áreiðanlegra það

x

Félagsrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit
https://timarit.is/publication/418

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.