Félagsrit - 01.01.1915, Qupperneq 18
18
fólkið þar og goldið því kaup sitt, auk þess gert fátæka
verzlunarþjóna að ríkum kaupmönnum, sumum svo rík-
um, að þeir hafa þótzt upj) úr því vaxnir að búa hér-
lendis, en sezt að ytra, og dregið þangað og notað þar
annari þjóð til eflingar afraksturinn af erfiði okkar. Við
höfum óbeinlínis bygt og borgað skip þau, sem annast
hafa siglingar hér við land. Skipin eru ekki á ferð hér
til að gera okkur greiða eða að gamni sínu, heldur vegna
þess að það borgar sig fyrir þau. Við erum sifelt að
borga þau með vörum. Verðið er dregið írá því sem
við fáum fyrir okkar vörur, og lagt á þær vörur, er við
verðum að kaupa. Þannig er skipaúthaldið á okkar
kostnað, alt á kostnað íslenzka bændafólksins; því alt
til þess nú fyrir 20—30 árum vóru hér engir framleið-
endur aðrir en bændur til sveita og sjávar. Með verzl-
uninni við kaupmenn í kaupstöðunum vinna framleið-
endur utan kaupstaðanna auk þess beint á móti þrifum
atvinnu sinnar, á þann hátt, að efla kaupstaðina og
auka atvinnu þar. Eftir því sem við eflum kaupmenn
að fé, færast þeir meira í fang. þurfa fleira íólk sér við
hönd; og þar sem við leggjum til launin handa þessu
fólki án takmörkunar frá okkar hendi, getur kaupgjaldið
í kaupstöðunum hækkað svo, að fólkið dregst þangað,
og við sitjum eftir hjúalausir. Við missum unga fólkið
þangað, jatnótt og við ölum það upp, vegna þess að við
látum aðra bjóða því þar betri kjör á okkar kostnað,
en við sjálfir getum boðið því í sveitunum. — Auk þessa
er enn ótali, að við höldum á kost og kaupi alla okk-
ar óþarflega mörgu embættismenn. og höfum þó á síð-
ari áruin gert talsvert af framkvæmdutn til almennings-
nota, sumpart okkur sjálfum til liðs, svo sem bætur á
samgöngum og ýmsar stofnanir. Alt þetta höfum við