Félagsrit - 01.01.1915, Side 56
56
andi, niðurröðun rekstra að húsunum, rekstrardaga o. fl.,
alt rætt rækilega með hluttöku flestra deildarstjóra. Næsta
dag fundur eins og venjulega (aðeins fáir deildarstjórar
við þá). — Ákv. afstaða Bn. útbúsins. — Kælivélamálið
hafði frkvn. lagt fram talsvert undirbúið. Varð að fresta
því af fjárhagsástæðum. — Stofnbréfasala. Ákv. „afl
láta menn vita, að sala stofnbréfa, þó hún ætti sér stað
leysti félagsmenn als eigi undan neinum skyldum við
félagið“. (— það ár rar, eins og kunnugt er, peningakreppa,
og erfitt að fá lán lil að reka viðskii'ti félagsins; bankarnir stað-
ir og óþjálir við félagið, og horfði til þess: að fjárverð yrði eigi
borgað f'yr en vörurnar seldust. En þá reyndist aðhlynning og
þrautsegja sumra bændanna við þetta stórnauðsynlega verzlunar-
fyrirlæki sitt ekki betur en svo, að þeir vitdu Iosa sig við stofn-
bréfin í þeirri von, að þeir væru þá tausir við allan vanda af
stofnuninni. Lá þá næiri, að þetta barn, félngið, væri drepið i
fæðingunni). — Brotamál, umræður og ákvarðanir. —
Um kjötverð næsta haust. — Rekstursfé. Félagsstjórnin
reyni að útvega lán . . . „en komi til þess, að lán
eigi fáist, eða eigi nægilegt, verður hver deild að sjá sér
farborða i því efni, með fjárframlagi eða bið eftir pen-
ingunum, þar til vörurnar seljast“. (Hörgull varð á pening.
um til útborgunar við móttöku fjárins um haustið, mest fyrir
það, nð Landsbankinn, sem gefið hafði vilyrði um 50,000 kr. lán,
kipti að sér hendinni aflur. Yarð þvi um 2 vikna tírna dráttur
á að útborga nokkuð af þeim */& blufurn verðsins, sem annars
álti að útborga, og vnr þá ekki að sökum að spyrja : Fjöldi fé-
lagsmanna snéru þá baki við félnginu, er mest lá á trygð þeirra
og einlægum stuðningi. Þeim, sem tryggir vóru þá og þoldu
þessa litlu bið, er það að þakka, að félagið stóðst þá rnun, og
hefur siðan getað orðið slíkur bjargvættur héraðanna, sem raun
er á orðin). — Gerðar ákvarðanir um slátur, flokkun
nautakjöts, vöruvöndun (skyldi taka að eins góðar vörur
til sölu í búð félagsins), o. s. frv, — I frkvn, kosinn