Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Blaðsíða 35
IÐUNN|
Mentamál og skólatilhögun.
193
um og einstaklingum sömu þjóðar, fólk er mismun-
andi bráðþroska. Það er talið byrja 1 til 2 árum
seinna hjá piltum en stúlkum. Liklega mun ekki
fjarri lagi, að telja það hér á landi frá 13—19 ára
aldurs hjá stúlkum, en frá 14—20 ára hjá piltum.
Á þessum aldri verða líkamlegar og andlegar breyt-
ingar á unglingunum og í stuttu máli þær, að börn-
in breytast í þroskað fólk. Grannvaxnir drengirnir
breytast í þrekna karlmenn; rómurinn breytist eins
og kunnugt er, — »mútur«, vegna þess að barkakýlið
stækkar og raddböndin lengjast. En langur strengur
gefur dimmari (lægri) tón en stuttur, og er það
kunnugt úr hljóðfræðinni. Andlegar breytingar verða
samhliða og í sömu átt; einkenni karlmenskunnar,
hreysti og hugprýði, koma í ljós. Eitt atriði þessara
breytinga, sem oft verður vart, er tilhneiging til þess
að varpa öllu því af sér, er virðist vera bönd, og
að þykjast fær í allan sjó. Margir varpa þá t. d.
trúarskoðununum fyrir borð, einkum þeir, er fræðslu
njóta. Yfirleitt þykjast skólagengnir unglingar á þess-
um aldri ærið vitrir. Um trúarskoðanirnar fer oft
svo, að hveitið er rifið upp með því, sem kallað er
illgresi og verður eftir svart flag, þar sem sú akur-
rein sálarinnar áður var. Stúlkurnar breytast einnig.
Stúlkan á gelgjuskeiði verður að þroskaðri konu,
með mjúkleik og þokka í limaburði og fasi og við-
kvæmni og þýðleik i lund og viðmóti. Andlegu
breytingarnar verða einnig, í samræmi við hlutverk
kvenna, tilfinningalíf og skapferli. En eitt atriði er
enn ónefnt, en svo mikils vert, að þessvegna er þetla
gert hér að sérstöku umtalsefni.
Á þessum aldri ber mikið á einni breytingu, trufl-
Un á jafnvæginu í sálarlífi ungmennanna. Á þessum
árum er auðvelt að móla unglingana, pilta og stúlk-
ur; og á þessum aldri er það því sannmæli, að þeir
standa á krossgötum lífsins. En þá er einmitt mest
Iöunn V. 13