Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Síða 40
198
Árni Árnason:
[IÐUNN'
verða nemendur hvers beklcjar mjög misjafnlega að
sér 1 hverri grein.
Umbótatillögur Á. Þorvaldssonar eru þessar helztar:
1. Öllum skólum, er undirbúa undir stúdentspróf, sé
skift í 6 námsdeildir, en í hverri deild séu kendar
fáar, skyldar námsgreinar: í 1. deild íslenzka, danska
(og sænska), í 2. deild enska og þýzka, í 3. deild
franska, latína (og fornaldarfræði), í 4. deild talna-
fræði, rúmmálsfræði og teiknun, í 5. deild landafræði
(náttúrufræði), nátturusaga og eðlisfræði, og í 6. deild
sagnfræði (þjóðfélagsfræði), trúbrögð og bókmenta-
saga. í íslenzku og einhverju stórmálanna, er nem-
andi velur fyrir aðalmál, séu strangar kröfur, en í
stað máls megi velja stærðfræði fyrir aðalgrein. 2.
Við hverja námsdeild kenni 3 sérfræðingar, sem
skifti nemendum deildarinnar í 3 flokka, og við hverja
deild sé bókasafn til frjálsra afnota. 3. Skylda til
þess að koma í líma falli burt. 4. Stúdentspróf sé
haldið af allsherjar prófnefnd, sem sé skipuð 18 sér-
fræðingum við Háskóla íslands.
í greininni næstu á undan gat ég um galla á fyr-
irkomulagi gagnfræðaskólanna, þar á meðal gagn-
fræðadeildar Mentaskólans, og ég tek yfirleitt undir
það, sem Árni Þorvaldsson telur galla á fyrir-
komulaginu. Um skólaagann verða altaf skiflar skoð-
anir. Sú skoðun hefir mikið til síns máls, að auka
beri ábyrgðartilfinningu nemenda sjálfra, með því
að gefa þeim lausari tauminn. Sumir mjmdu að lik-
indum dragast aftur úr von bráðar og verða slæp-
ingjar. En er þá ekki eins golt að skilja sauðina
frá höfrunum, fyr en þeir eru dregnir gegnum allan
skólann og verða svo slæpingjar og ómenni á há-
skólanum? Ekki tjáir samt að sleppa öllum skóla-
aga, og Árni Þorvaldsson gerir sjálfur ráð fyrir því,
að hegna nemendum með því að vísa þeim frá kenslu-
notum. Líka eru aðrir gallar á reglugerðinni en þeir,