Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Page 50
208 Árni Árnason: jiðunN
Þessa kosti hefir Árni Þorvaldsson tekið fram, en
ég vil bæta því við, að:
5. Skólinn gelur jafnframt, án breytinga eða sér-
staks kostnaðar, verið kennaraskóli handa alþýðukenn-
araefnum. Með þessu er stofnaður nýr, vel við unandi
kennaraskóli, án þess að til þess þurfi sérstakt hús-
rúm eða sérstaka kennara.
6. Með þessu móti kæmist á stofn sérstök deild,
listadeild, sem öllum stæði opin, og er full þörf á
henni. Gæti liún ef til vill orðið fyrsti vísir til lista-
skóla hér á landi.
7. í stað gagnfræðadeildar Mentaskólans kæmi hag-
feldur og myndarlegur gagnfræðaskóli, sem þyrfti lít-
inn kostnað að baka landinu, fram yfir það sem nú
er, því að húsið og kennararpir eru til fyrir, þar
sem kennaraskólinn nú er.
8. Loks er ótalinn sá kosturinn, að sérlega dug-
legir nemendur gætu átt þess kost, að taka meira
próf bæði í ináladeild og stærðfræðideild. En það er
ekki unt með þeirri tilhögun, sem nú tíðkast.
9. Mótbárur.
Ég ætla því næst að geta um mótbárur þær hinar
helztu, sem ég geri ráð fyrir að komi fram gegn
tillögu minni.
1. Að of langur tími líði á milli fyrsta og síðasta
prófs, má með nokkrum rétti segja um niina tillögu,
eins og um tillögu Árna Porvaldssonar, en þó síður.
Við árspróf upp úr 3. bekk Mentaskólans útskrifast
nemendur nú að miklu leyti í landafræði, náttúru-
sögu og eðlisfræði, en þá eru eflir 3 ár til stúdents-
prófs.
2. Nemendur hafa ekki náð nægum þroska við
fyrsta prófið. Um það má altaf deila. Eftir tillögu
minni um aldurstakmörk yrðu nemendur 16 ára