Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 29

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 29
IÐUNN Nýja ísland. 351 mílu eftir mílu, bara þessir hrafnar, sem fljúga um hvítan skóginn og tylla sér á skóginn líkt og á Pallasmynd úr leir. >Aldrei rneir*. Og Torfi Torfason er að hugsa um sernar sínar og kýrnar sínar og hestana sína og alt, sem hann hefur mist. Þá vappar alt í einu tíkargrey í veg fyrir hann innan úr skóginum. Þetta var grindhoruð flækingstík, og svo kviðmikil, að henni var þungt um sporið, en spenarnir strukust við mjöllina, því hún var hvolpafull. Þau komu þarna sitt úr hvorri áttinni, tvær einmana lífsverur, sem eru að spila upp á sínar eigin spýtur í Ameríku og mætast einn kaldan vetrardag úli í snjónum. Fyrst sperti hún eyrun og horfði á manninn mórauðum tortrygnis- augum, þá lúrði hún sig niður í snjóinn og fór að skjálfa, og hann skildi að hún væri að segja sér, að hún væri lasin, að hún hefði týnt eiganda sínum, að hún hefði iðulega verið barin, barin, barin og aldrei á æfi sinni fengið nóg að éta, og að enginn hefði verið góður við sig, aldrei; hún meinti, að enginn vissi hvar þetta mundi enda fyrir sér. Hún sagðist vera svo fátæk. — Ja, það er margt lífið, þó lifað sé, sagði Torfi Torfason. Og hann leysti af sér pokann og settist flöt- um beinum niður í snjóinn. Og í pokaopinu var eitthvað, sem Tóta litla hafði tínt til handa pabba sínum í nestið. Og þá fór tíkin að dingla skottinu til og frá í snjónum og mæna munaraugum í opið á pokanum. — Jaeja, greyið, svo þú hefur týnt honum eiganda þínum og ekkert haft í þig, síðan Guð veit hvenær, og ég er nú búinn að hrekja frá mér konuna mína, ojá, og hún fór í gær. Ojá, hún ætlar að reyna að basla eitthvað ofan af fyrir sér með þvottavinnu uppi í Winni- peg í vetur, ojá, og svona er nú það. Ojá, við tókum okkur upp þarna að heiman frá sæmilegri afkomu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.