Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 94
416
Ritsjá.
IÐUNN
sízt ef maðurinn kemur ungur fram á sjónarsviðið. Dæmi eru til
að rithöfundur hafi orðið frægur af fyrstu bók sinni, en síðan
aldrei skrifað neitt nýtilegt. Aðrir sækja sig og verða liðtækir með
aldri og reynslu, þótf lítið hafi haft að fara með í byrjun. Eg veit
ekki aldur þessa höfundar, en hann virðist nokkuð ótaminn enn þá.
En grunað getur mann, að hann búi ef til vill yfir öflum, sem
gætu Iyft honum til hærra flugs seinna meir.
Bókin er prentuð í Berlín, og hafa þá þýzkir setjarar unnið
að henni. I þeirri staðreynd vill góðgjarn lesandi leita skýringa á
prentvillunum, sem eru helzti margar. Látum það nú vera, að á
fjórum blaðsíðum í einni af sögunum er talað sjö sinnum um
læknirinn (í þolf.). Það er ekki einu sinni víst að það sé prent-
villa, því um eitt skeið sá maður slíkt nærri daglega í Morgun-
blaðinu. En þegar prentað er „dregnum" fyrir drengnum hvað
eftir annað i þessari sömu sögu, verður Iíklega að skrifa það í
skuldadálk þýzku setjaranna. En prófarkalesarinn hefir þá heldur
enga afsökun, sé hann Islendingur.
Erich Maria Remarque: Tíðindalaust á vesturvígstöðvun-
um. Björn Franzson íslenzkaði. Rvfk. 1930. Ríkisprsm. Gutenberg.
Um bók þessa var ritað í Iðunni í fyrra, og auk þess er að
henni vikið í þessu hefti af eigi færri en þrem höfundum. Þaö
væri því að bera í bakkafullan Iækinn að skrifa um hana langt
mál að þessu sinni. Engin bók frá síðari tímum hefir hlotið aðra
eins frægð eða náð annari eins útbreiðslu eins og þessi ófriðar-
lýsing Remarque’s — og um enga verið meira rætt og ritað. Mun
hún nú þegar vera þýdd á meira en tuttugu tungumál. Það er
gleðiefni, að íslenzkir lesendur eiga nú kost á að lesa hana á sínu
eigin máli. Þýðingin virðist vera prýðisgóð.
Icelandic Lyrics heitir prýðileg bók, sem lðunn vildi vekja
athygli á, ef rúm væri til. Hefir Richard Bech safnað og ritað inn-
gang að, en Þórhallur Bjarnarson gefið út. Er þetta mikið safn
íslenzkra Ijóða frá síðustu hundrað árum með enskum þýðingum,
sem flestar eru gerðar af Vestur-Islendingum. Flest góðskáld vor
frá þessu tímabili eru mætt þarna, og einkum valin merkustu kvæði
þeirra. Myndir fylgja af öllum skáldunum og stutt æfiágrip. Utgáfan
er vönduð svo að af ber, og bókin í alla staði hin eigulegasta,
einkar vel fallin til tækifærisgjafa. Hún fæst hjá útgefanda. A. H.