Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 57
IÐUNN
Frægasta bókin og hin nýja líffræði.
379
bandi má ná við hina óendanlegu uppsprettu kraftarins.
Það, sem þá verður, er það sem ég hefi nefnt Hyper-
zóon — það líf, sem hefir náð fullkomnu samstæði og
þó fullkomnu sjálfstæði. Þar verða, vegna hins fullkomna
samstæðis, allir kraftar tilverunnar á valdi hvers ein-
staklings. Framþróun lífsins á að vera í því fólgin, að
stefna æ betur og betur að þessu takmarki. Það, sem
miðar í áttina til hinnar æðri lífheildar, er gott og eftir-
sóknarvert, en ilt það, sem spillir fyrir að hún geti orðið.
Fyrir mannkyni vorrar jarðar liggur nú að komast
bráðlega á hina réttu leið. Mundi skemst vera eftir
sögu þess, ef það gæti ekki orðið. En mjög áríðandi
spor í rétta átt er að skilja, að sambandskraftar lífsins
eru svo miklir, að þeir brúa jafnvel geimdjúpin milli
himinhnattanna, og öðlast þá jafnframt glöggan skilning
á því, hvernig öll trú er til orðin fyrir slíkt samband,
trúin á guði og djöfla, á himnaríki og helvíti, og hvernig
styrjaldir miða mjög til að auka samband við hina verstu
staði og magnan frá hinum verstu verum, slíka, sem er
svo aðdáanlega lýst í hinni frægu bók Remarque’s.
12. nóu.
Helgi Pjeturss.