Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 90
412
Ennýall.
IÐUNN
til þess af honum, að hann skýrði frá sfarfsaðferðum
sínum nánar, en hann hefir gert. Sjálfur leggur hann
þunga áherzlu á það, að kenningar sínar sé vísindi. En
vísindalegar nýjungar öðlast kraft fyrir vísindalegar sann-
anir. Stórfróðlegt mundi það verða að fylgja rannsóknar-
ferli hans, fet fyrir fet, frá því fyrsta er hann tók að
athuga draumlífið og til þess dags, er byggingin stóð
fullsteypt og heil fyrir hugarsjónum hans. Og hvað mundi
áhrifameira til fylgis en slík greinargerð — fylgis manna,
er skipuðu sér undir merki hans af grunnmúraðri sann-
færingu, en ekki í blindri frú? —
Helgi Pjeturss er einstæður í sarrttíð sinni, eins og
þegar er að vikið. En það næðir stundum napurt um
þann, sem gnæfir yfir fjöldann. Eg hygg það ekki fjarri
sanni, að H. P. kenni sig stundum nokkuð einmana, að
honum finnist á skorta skilning og samúð með starfi
hans af hálfu þjóðarinnar. Þó mun hann eiga ítök í hug-
um manna víðar en hann kannske grunar, og þeir munu
fáir, af lesandi mönnum hér á landi, sem láta fara fram
hjá sér nokkuð það, er nafn hans stendur undir. En vel
mætti sýna honum meiri opinberan sóma, en gert hefir
verið. Hann er þess meira en maklegur. Hann er ekki
bara mikill rithöfundur og heimspekingur, heldur líka
ágætur vísindamaður, sem hefir gert merkilegar upp-
götvanir í jarðfræði. Það er raunar furða, að utan um
heimspekinginn og dulfræðinginn Helga Pjeturss skuli
ekki þegar fyrir löngu hafa myndast skipulagður söfn-
uður. En til þess hefir hann víst aldrei gert neitt sjálfur
— og óvíst, að hann kærði sig um slíkt. Hitt verður að
telja illa farið, að slíkur afreksmaður skuli búa við
þröngan kost, svo að erfið ytri ^skilyrði hamli honum að
starfa að hugðarefnum sínum. Úr þessu þyrfti að bæta.
En það þyrfti að gera meira. Einhver ísl. mentamaður
ætti að taka á sig rögg, slá drengilega til hljóðs fyrir
Helga Pjeturss í víðlesnu erlendu tímariti og helzt að fá
bækur hans þýddar á tungu einhverrar af stórþjóðunum.
Heimurinn þarf að fá að vita það, að hér á útskerinu lifir
og starfar merkilegur heimspekingur, sem hefir varið æfi
sinni til að ráða duldustu rúnir tilverunnar. Á. H.