Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 82
404
Þrjár bækur.
IÐUNN
ekki fyrir hitt, hve fast og karlmannlega, hve samræmt
og lengi bann hafi gerst skeleggur boðberi nýrra og
óvinsælla skoðana. Þetta skemtilega ergelsi góðra manna
yfir ærsium hans og barnabrekum spáir ágætu um mátt
hans til að hafa áhrif á menn, og er vottur þess háska,
sem talið er, að geti af honum staðið. En þess er að
óska, að meiri alvara og alráðinn umbótavilji þroska-
áranna eigi eftir að stefna að honum kaldari andúð og
meiri gný. Annars kostar mun svo verða litið á, sem
höf. Alþýðubókarinnar efni ekki óskráð loforð sín.
III.
Gunnar Benediktsson: Æfisaga Jesú frá Nazaret.
Eg hef áður lítillega getið þessarar bókar. Astæðan
til þess, að ég geri það á ný, er fyrst og fremst sú, að
mér virðist ekki verða hjá því komist, að telja hana
meðal þeirra fáu bóka íslenzkra, sem kalla mætti nútíma-
bækur. Auk þess hefur ýmislegt verið um hana ritað,
síðan ég skrifaði fyrri ritdóm minn, og sumt ekki alls-
kostar vinsamlega. Þetta er mér hvöt til að votta höf-
undinum af nýju þann vinarhug, sem ég hafði reynt að
leggja inn í fyrri ummæli mín.
Hér verður ekki reynt til þess að gera út um rétt-
mæti þeirrar skoðunar, sem er uppistaða bókarinnar,
að ]esús frá Nazaret hafi einkum verið róttækur bylt-
ingamaður og öreiga-leiðtogi. Hann hafi að vísu verið
afburðamaður að vitsmunum og skáldlegri andagift, og
persóna hans þrungin af yndisleik og laðandi valdi, eins
og títt er um afburðamenn. En um guðlegan sendiboða
og endurlausnara í trúfræðilegri merkingu hafi alls ekki
verið að ræða. Hér verður meira að segja ekki gerð
nein tilraun til þess að meta gildi þeirra heimilda, sem
Gunnar Benediktsson byggir skoðun sína á. Ungur guð-
fræðingur einn hefur glefsað að höf. fyrir fákunnáttu í
guðfræðilegum efnum. Eg þori ekki að gera það. Við
höfum báðir gengið á sama guðfræðingaskólann. Og ég
dirfist ekki að krefjast þess af mönnum, að þeir taki