Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 91

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Blaðsíða 91
IÐUNN Ritsjá. Davíð Þorvaldsson: Kalviðir. Smásögur. Rvík. Prsm. Acla. 1930. í fyrra gaf þessi sami höfundur út smásögusafn („Björn for- maður og fleiri smásögur"), sem þótti mjög efnilegt. I þessari bók, Kalviðum, efnir hann fyllilega það, sem hann lofaði í fyrra, eða það sjást m. ö. o. greinileg þroskamerki. Þessar sögur eru yfirleitt betur samdar, fastari fyrir, — og þótt samúðin með smælingjunum sé eins rótgróin í fyrri sögunum, kemur hún í þessum sögum enn skýrara í ljós. — I fyrstu sögunni, sem heitir „Rússneskir fiótta- menn“, er að vísu ekki fastur söguþráður, en hún er eins og lífið sjálft, bregður upp skýrum en hverfulum myndum og er hlutlaus eins og lífið, — höf. skilur andstæðar skoðanir, skilur, að skoð- anir eru hverfular bólur á hafi tilfinninga og ástríðna, sem eru samofnar eðli mannsins. Hið háleita og hið hlægilega stendur þar hvort við annars hlið eins og í Iífinu, og manni verður hvort- tveggja jafn-kært. Næsta sagan, „Einmana sálir“, er um tvær ein- stæðingssystur, sem hafa átt sinn fífil fegri, og lýsir þeim af samúð og skilningi á þessum olnbogabörnum gæfunnar. — „Blómasalinn'* er smámynd úr djúpum mannlífsins eftir stríðið og gerist á Frakk- landi. „Hans bókhaldari" er saga, full af góðláflegri kímni, en það er alvara bak við kímnina og djúp tilfinning þess, hve allir menn eru inst inni líkir og eiga allir um sama hliðið að ganga að lokum. „Pólski málarinn" segir frá baráttu afburðamannsins gegn örlög- unum, sem endar með ósigri' hans. Æfi hans verður „eins og hvítt pappírsblað, sem krakki hefur rissað nokkur strik á“. — Sagan „Ekkert" fjallar um ást, sem kviknar við hljóðfæraslátt og dans, logar um stund og slokknar svo út af, án þess að neitt hafi komið fyrir. „Léttfeti" er saga nm heimþrá og dauða íslenzks hests í námunum í Belgíu, — samtal hans við „borgina dauðu", Briigge, — og sýnir, að „ekkert getur bundið jafnvel þrautpíndan námu- hest, þegar heimþráin seiðir ... þegar átthagarnir kalla". Sú saga sýnir greinilega, að höf. gengur ekki, jafnvel í alvarlegustu sögum sínum, fram hjá hinu hlægilega, en kann að íklæða það þeirri tign og þunga, því áhrifavaldi, að í stað þess að hlæja, vöknar manni um augu „Kalviðir“ eru óvenju-góðar sögur. Þar er skáld að verki. Jakob Jóh. Smári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.