Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 41

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 41
IÐUNN Ferðaminningar. 363 þessi gersemi af manni, sem eg æflaði að reyna að hafa mér augliti til auglitis í alla nótt, til að læra af borgaralega mannasiði í járnbrautum og að minnsta kosti til að einblína á, þegar svefnmókið ætlar að ná tökum á mér. En hér er ekki um neitt að villast. Heild- salinn hverfur í armana á tvíbreiðri konu sinni, þarna fyrir augunum á mér, og að því búnu draslar hann henni og handtösku sinni upp í einn og sama bíl og hverfur sjálfur inn í bílinn á eftir, og síðan dragnast bíllinn út í náttmyrkrið og hverfur, en eg stend aleinn eftir, vonsvikinn og reglulega ergilegur. Nú fæ eg annað um að hugsa. Inn á næstu járn- brautarteina rennur lest, sem eg sé mér til mikillar gleði, að ætlar til Stokkhólms og leggur þrem kortérum fyrr af stað en lestin, sem eg hafði búist við að verða að fara með. Eg hugsa mig ekki lengi um, en stíg tafar- laust upp í þessa óvæntu hraðlest og kem mér fyrir í horni á rúmgóðum vagni með fjórum bekkjum og tveim borðum. Þarna er bezt að eg hýrist á þessari tíu tíma náttferð, sem nú er fyrir dyrum. Ekki er nú margt nýstárlegt í þessum þriðja flokks vagni. A veggina eru festir kassar fyrir vindlaösku og á gólfinu eru hrákadallar, en af þessu ræð eg það, að í sænskum járnbrautarlestum sé gert ráð fyrir tvenns konar siðmenningu, nefnilega að menn reyki og skyrpi út úr sér. Á alla glugga eru límdir miðar, þar sem á er þrykkt með feitu rauðu Ietri, að menn sé beðnir að hafa yfirvofandi eldhættu hugfasta. Ef eg tæki þetta bókstaf- lega, væri það víst nóg til þess, að mér kæmi ekki dúr á augu í nótt, jafn-eldhræddum manni. Og ef svo ólík- lega færi, að eg sofnaði, er eg viss um, að eg vaknaði við það, að mig væri að dreyma stórbruna inni í Skugga- hverfi; mig hefir tvisvar dreymt það á ævinni. Svo eg

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.