Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 60
382 Fálkinn. IÐUNN yfir þá eftir því sem ljósopin drógust saman, þangað til að þeir voru orðnir næstum blíðlátir að síðustu, þegar hann rétti þeim bita af heitu blóðugu kjöti. En þeir voru ekki að hans skapi; hann varð fljótlega leiður á þeim, og hann var ekki lengi að taka eftir því, að eng- inn þeirra hafði stálbringu íslenzka fálkans, né löngu, breiðu vængina hans, og að enginn þeirra bjó yfir slíku afli. En þó var skemtilegra en alt annað að sjá, hvernig þeir voru tamdir til veiða eftir hinum spaklegu reglum Modusar konungs, þegar nokkur tími var frá liðinn og endurminningin um frelsið var farin að dofna, og þeir móktu þunglamalegir og blindir á prikum sínum. Fyrst varð að venja þá á að fljúga aftur, en þó með fjötur um fót, þangað til þeim lærðist að steypa sér, effir kalli fálkarans, yfir úttroðinn gervifugl með stórum hegravængjum, sem sveiflaðist á bandi í ákveðna hringi í loftinu — og það var gaman að sjá, — en við hann var fest brjóst af lynghænu eða einhver biti af kjúkl- ingi, sem fálkinn reif í sig með slíkri áfergju, að bræðin yfir áþjáninni vék fyrir blóðþorstanum. Þeir vöndust svo fljótt á þetta, að þeir hættu jafnvel að teygja hið minsta á fjötrinum, og villieðlið blossaði aldrei framar upp í augum þeirra. Þeir skygndust strax um eftir gervifugl- inum, og það var aðeins fyrir siðasakir og af skyldu- rækni, að þeir stigu upp á við í sveigum og rendu sér síðan letilega niður í einni stórri sveiflu með gletnislegri hæversku. Og þegar fjöturinn var tekinn af þeim, virtust þeir ekki taka eftir því. Nú var kominn tími til að venja þá við veiðar, eftir því sem hverjum hæfði. Hinir minni voru látnir fást við lynghænur, rjúpur og spörva, en þeir stærri við héra, hegra eða gleður — gleðurnar, þessa ruddafugla, sem

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.